Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1948, Qupperneq 1
S JÖMANIM ABLAÐIÐ
UÍKIH6UR
ÚTGEFANDI: FARMANNA- OG FISKIMANNASAMBAND ÍSLANDS
X. árg. 11.-12. tbl.
Reykjavík, nóv.—des. 1948
Jólaguðspjallið
„En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Ágústus
keisara, um að skfásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var
fyrsta skrásetningin, er gjörð var, þá er Kýreníus var landstjóri
á Sýrlandi. Og fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til
sinnar borgar. Fór þá einnig Jósef úr Galíleu frá borginni
Nazaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem,
því að hann var af húsi og kynþætti Davíðs, til að láta skrásetja
sig, ásam t Maríu heitkonu sinni, sem þá var þunguð. En á með-
an þau dvóldust þar kom að því, að hún skyldi verða léttari.
Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði
hann í jötu, af því að það var eigi rúm fyrir þau í gistihúsinu.
Og í þeirri byggð voru fjárhirðar úti i haga og gættu um nótt-
ina hjarðar sinnar. Og engill drottins stóð hjá þeim og dýrð
drottins Ijómaði í kring um þá, og urðu þeir mjög hræddir. Og
engillinn sagði við þá: Verið óhræddir, þvi sjá, ég boða yður
mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum; þvi að yður er
í dag frelsari fæddur, sem er Kristur drottinn, í borg Davíðs.
Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og
liggjandi í jötu. Og í sömu svipan var með englinum fjöldi
himneskra hersveita, sem lofuðu guð og sögðu: Dýrð sé guði i
upphæðum,, og friður á jörðu með þeim mönmim, sem hann
hefur velþóknun á.“
V I K I N G U R
293