Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1948, Qupperneq 46
Hluti af negrahverfi í amerískri stórborg.
Dæmi þessu lík eru óteljandi.
Við flugvélasmiðjur í Ohio lögðu 12 þús.
manns niður vinnu, vegna þess að sjö negrar
— hálærðir sérfræðingar, — höfðu verið ráðnir
að verksmiðjunum.
Leikstjóri nokkur í Hollywood hafði pantað
borð handa tveimur, á næturklúbb einum. Þeg-
ar hann kom þangað ásamt hinni frægu negra-
leikkonu Lena Horne, beitti yfirþjónninn hvers
konar undanbrögðum.
— Afsakið, herra minn. Það hljóta að hafa
orðið einhver mistök með pöntunina. Við finn-
um hana hvergi. Hver tók borðið frá handa
yður?
Leikstjórinn svaraði hvasst:
— Abraham Lincoln.
En það tjáir oft lítið að vitna í Abraham
Lincholn. Þótt Bandaríkin hafi háð styrjöld
gegn drottnunarstefnu og kynþáttahatri fasista-
landanna, er drjúgur hluti Bandaríkjaþjóðar-
innar uppbelgdur og eitraður af fordómum gegn
svertingjum.
Því skal sízt neitað, að sterk öfl berjast fyrir
rétti svertingjanna og gegn villimennskunni.
Ýmsir ágætustu menn Bandarík.þmna hafa hætt
lýðhylli sinni til að vinna málstað negranna
gagn. Jafnvel í Suðurríkjunum, þar sem negra-
hatrið má heita opinber ríkistrú, starfa allmörg
félög og flokkar manna að upprætingu for-
dómanna.
En það starf sækist seint.
Nokkrar hagfræðilegar staðreyndir tala skýru
máli um kjör svertingjanna í Bandi’íkjunum.
Meðalaldur svertingja er fullum 10 árum
skemmri en hvítra manna. Barnadauðinn er tvö-
faldur hjá svertingjum á við hina hvítu.
í Harlem, — svertingjahverfi New York —
gerir berklaveiki sjö sinnum meiri usla en í
öðrum hlutum borgarinnar. Þetta stafar ekki af
því, að berklagerillinn hafi einhverja fordóma
gagnvart hvítum mönnum og vilji þá síður.
Skýringin er einfaldlega sú, að berklarnir þríf-
ast bezt í aumustu fátækrahverfunum, þar sem
mest er um óþrif, örbyrgð og neyð.
Svertingjarnir hafa fæstir af sjúkrahúsum
að segja, þó að þeir veikizt. í Bandaríkjunum er
1 sjúkrarúm fyrir hverja 13 þús. svertingja, —
og 1 fyrir hverja 100 hvíta menn. Til eru þau
fylki í suðurhluta landsins, þar sem eru 75
sjúkrarúm fyrir eina milljón negra. Þetta er
látið viðgangast í auðugu menningarríki, sem
lengi hefur státað af betri lífskjörum almenn-
ings en nokkurt land annað í veröldinni.
Hvar, sem niður er gripið, er hið sama uppi
á teningnum. Hagskýrslur sýna það, að negr-
arnir hafa langtum minni laun en hvítir sam-
landar þeirra, margfalt verri íbúðir, færri og
lélegri skóla. Allt skapar þetta afbrot, armóð og
eymd. Afbrot svertingjanna, armóðurinn og
eymdin efla síðan fordóma hvíta fólksins, sem
3 3B
VÍKINGUR