Andvari

Volume

Andvari - 01.07.1962, Page 54

Andvari - 01.07.1962, Page 54
164 MATTHÍAS JÓNASSON ANDVAR1 uppeldislega séð mjög íátældegt samfé- lagsform og veldur ekki uppeldishlutverki sínu. Þessar staðreyndir sýna ótvírætt, að innri gerð heimilisins er gerbreytt og að- staða þess í samfélaginu miklu veikari en áður. Okkur ber að skoða þessa breyt- ingu af raunsæi, án þess að áfellast einn né neinn. Þróuninni verður ekki snúið aftur. í henni orka saman margvísleg öfl, sem stefna greinilega í framvinduátt, þó að þau valdi erfiðleikum í svip. Uppeldis- starfinu vex jafnan nokkur vandi af breyttum samfélagsaðstæðum, en þegar þær verða jafn róttækar og nú er raun á, er sérstök ástæða til þess að gera sér grein fyrir þeim úrræðum, sem tiltækilegust þykja. Einnig væri freistandi að skyggnast ofurlítið fram í tímann og reyna að gera sér Ijóst, hvert umrædd breyting á stöðu heimilisins leiðir, ef hún gengur næstu þrjá mannsaldra í sömu átt og nú horfir. Þar renna þó saman margir þræðir, sem gera málið geysiflókið. Ég vil benda á það eitt, að sú hefð er að rofna, að barn eigi sér fast heimili ásamt föður og móð- ur. Sú æska, sem sjálf fór á mis við áhrif foreldraheimilis í uppvexti sínum, er ekki líkleg til mikilla fórna í því skyni að veita börnum sínum foreldraheimili. Ungur maður, sem sjálfur ólst upp með einstæð- ingsmóður, mun ekki taka nærri sér að ætla barni sínu sama hlutskipti né telja barnsmóður sinni vandara um en eigin móður. Og unga stúlkan, sem var gctin í lausaleik og alin upp föðurlaus, hefur engan stuðning af fordæmi rnóður sinnar um hjónaband og heimili. Umhyggju foreldra fyrir afkvæmi sínu gæti hrakað svo, að þau tækju á sig þá skyldu eina, sem lögboðin er. Karhnaður á völina að rækja föðurhlutverk sitt gagnvart barni, sem hann á í vonum, eða flýja frá þeirri kröfu, sem afkvæmi og eigið heimili gera til hans. Samkvæmt núgildandi siðvenju cr faðerni af þrenns konar gerð: Óskorað faðerni, faðerni með afföllum og lög- þvingað lágmarksfaðerni. Þannig grípur upplausn fjölskyldusiðgæðisins inn í sið- gæðisvitund einstaklingsins sjálfs. Frá sjónarmiði siðgæðis og þegnskapar verð- ur nú sá hópur karla ískyggilega stór, sem hrestur kjark til þcss að gangast eðlilega við afkvæmi sínu, en yfirgefur barns- móður sína um leið og hin nýja lífvera krefst réttar síns. Að breyttu breytanda gæti konan hagað sér á svipaðan hátt, enda gerist það oft, t. d. þegar ung stúlka kastar barninu í fang móður sinni eða jafnvel fjarskyldari ættingjum og sinnir því varla þaðan í frá. Siðfræðilega séð, ber móðurinni ckki framar en föðurnum skylda til að annast barnið. En þó að móðir afneiti barni sínu ekki algerlega, geta þó ýmis veraldargæði freistað hennar til þess að vanrækja það, hvort sem hún býr nú með föður þess eða ekki. Hin unga móðir verður að velja á milli tekjurýrra heimilisstarfa og arðbærrar atvinnu, milli naumra heimilispeninga og kaupgreiðslu, sem hún er vön að ráðstafa að vild, milli tómstundafrjálsræðis lausakonunnar og þrotlausra skyldustarfa húsmóðurinnar. Geta karlmenn vænzt til lengdar því- líkra siðgæðisyfirburða af konum, að þær bæti stöðugt á sig þeim foreldraskyldum, sem þeir skjóta sér hjá? Eins og nú horfir, orkar hver klofin fjölskylda eins og fleyg- ur, sem sprengir sundur hina hefðbundnu samfélagsgerð. III Hnignun foreldraheimilisins er liluti þess arls, sem mín kynslóð skilar æskunni. Heimilið og siðgæði þess er sá brenni- depill, sem endurspeglar skýrast mismun- andi afstöðu kynslóðanna. Krafan um ákveðin áhrif á siðgæðisþróun æskunnar er runnin frá kynslóð foreldranna, en
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.