Andvari

Árgangur

Andvari - 01.07.1962, Síða 104

Andvari - 01.07.1962, Síða 104
214 SVEllRIR KRISTjANSSON ANDVARJ virt á 4642 dali og var þaS nærri lielmingi minna en virðingarverð þeirra árið 1759. Sama árið og stofnanirnar urðu að fullu konungseign var Þórður Tlror- oddi sendur til íslands að kynna sér stofnanir og atvinnugreinar og sendi liann stjóminni skýrslu um för sína 1782—1783. Af henni má sjá, að mjög var föln- aður Ijómi iðnaðarstofnananna í Reykjavík. Starfslið stofnananna, þegar allt var talið, var 34 manns. Áliöld og verkfæri voru orðin nrjög úr sér gengin og ekki nýtt nema að cinum þriðja og tæplega það. Þegar gerður var upp hagur stofnananna 1784 er þær höfðu verið á franrfæri konungs í tíu ár kom í ljós, að tapið á klæðavefnaðinum hafði um þennan tíma verið 12,897 rd., en brenni- steinssuðan hafði skilað 452 rd. í ábata. Frá hagfræðilegu sjónarmiði var því í rauninni ekki undarlegt þótt dönsku ráðgjafarnir vildu losa konung við þetta baslfyrirtæki. Árið 1786 voru stofnanirnar auglýstar til sölu, en tckið var fram að vefsmiðjan í Reykjavík yrði ekki afhent nema með því skilyrði, „að fram- haldið verði því fyrirtæki sem nú er þar ástofnað, að kenna unglingum vefnað og spuna, að minnsta kosti svo lengi þetta virðist þar nauðsynlega ómissandi.“ Þetta skilyrði er án efa runnið undan rifjum Jóns Eiríkssonar konferensráðs, aldavinar Skúla Magnússonar. Hann reyndi í lengstu lög að halda í þá kon- ungshugsjón Skúla, að iðnaðarstofnanirnar væru ekki aðeins gróðafyrirtæki. heldur reynsluskóli þjóðarinnar i nýjum vinnuhrögðum. Enn tókst unr nokkur ár að forða stofnununum frá dauða og á árunum 1786—1790 er danskur maður, Giese að nafni, kallaður „Fahriquemester" í Reykjavík. En á síðasta áratugi aldarinnar deyja stofnanir Skúla Magniissonar hljóðum og kyrrlátum dauðdaga. Þeirra er síðast getið á lífi í maímánuði 1799, er vefurum voru goldin laun, 30 ríkisdalir. En þegar þar var komið sögu hafði hækkað hagur liins gamla Hólms- kaupstaðar. Þar hafði risið landsins eina nrannhelda tukthús, af steini gjört. Biskup landsins og latínuskóli prýddu nú þann stað, þar sem danskir kaupmenn höfðu selt svikið messuvín. Arftaki alþingis, Landsyfirrétturinn, mundi einnig brátt slá þar upp tjöldum sínum. í hinu ldassíska landi strjálbýlisins var um- boðsstjórnarvaldið að færast í miðlæga átt. Á 9. áratugi 18. aldar urðu tvær afdrifaríkar breytingar á hagkerfi lands- ins: verzlunin var gefin frjáls við alla þegna Danakonungs og sex verzlunar- stöðum voru veitt kaupstaðarréttindi, og var Reykjavík þar fremst í flokki. Með tilskipuninni um fríheit kaupstaðanna á íslandi 17. nóv. 1786 var í fyrsta skipti í sögu íslands reynt að teygja menn til að setjast að í kaupstöðum og skapa þar borgaralega lífshætti. Þeim sem þetta vildu þekkjast var heitið mörgum fríðind- um og sérréttindum. Hver sá sem beiðist borgararéttar fær hann ókeypis, sver horgaraeið og er skrifaður í horgarabókina og fær sitt borgarabréf útgjaldalaust. Með því fær hann fullan rétt til að stunda allsháttar kaupstaða-næringu. Borg-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.