Andvari - 01.01.1971, Blaðsíða 27
ANDVARI
HIÐ ÍSLENZKA I'JÓÐVINAFÉLAG
25
„Þá var nokkuð rætt um sarnvinnu félagsins við Bókadeild Menningarsjóðs, en
um það mál hafði stjórnin áður rætt nokkuð og forseti ritað stjórn Menningarsjóðs
hréf um 'það efni í sumar. ... Eftir nokkrar umræður var samþykkt í einu hljóði
ályktun frá forseta, Pálma rektor Hannessyni, svo hljóðandi:
„Stjóm Hins íslenzka þjóðvinafélags ályktar að lýsa yfir því, að hún telur
æskilegt, að samvinna geti tekizt við Bókadeild Menningarsjóðs um útgáfu
bóka að því leyti sem slíkt rná verða án þess að lögum félagsins sé breytt né
sjálfstæði þess eða öryggi hnekkt.“
Þessi samþykkt stjórnarinnar var viðbúnaður af hennar liendi við aðal-
fundi og þætti alþingis í þessum málum. Var sá aðalfundur viðburðameiri en
löngum fyrr og síðar. En þannig segir af honum í fundargerð Gísla Sveinssonar
frá 7. des. 1939:
„... Þá las forseti upp till. frá Jónasi Jónssyni og Ólafi Thors til breyt.
á lögum félagsins. Til máls tók fyrstur Jónas Jónsson, þar næst fél.forseti Pálrni
Hannesson. Las hann upp tillögur fél.stjórnar um það efni, sem breyt.till.
I jallar um ...
Gísli Sveinsson tók til máls og bar fram tillögu. Enn talaði Jónas Jónsson,
svo Ólafur Thors, Pétur Halldórsson, Hermann Jónasson. Hann bar fram till. um
að fresta umr. og ályktun í málinu nolckra daga, og sé kosin í málinu 7 manna
nefnd til þess að athuga tillögur þær, sem fram komnar eru (og tilnefndi hann
stjórnarmenn Þjóðvinafél. og meðlimi Menntam.ráðs). —
Tillaga þeirra J. J. og Ól. Th. hljóðaði svo: „Tillaga til breytingar á lögum
Hins ísl. þjóðvinafél.: aftan við lögin bætist svohljóðandi:
„Menntamálaráð íslands verði jafnframt sínu starfi stjórn Þjóð-
vinafélagsins árin 1940—1941 með sömu verkaskiptingu innan stjórn-
arinnar. Fjármálum og bókhaldi Þjóðvinafél. og Menntamálaráðs skal
haldið fullkomlega aðgreindum. Hin nýja bókaútgáfa, sem Mmr. leggur
fé til, verður starfrækt á nafni Þjóðvinafélagsins, og fái Þjóðvinafélags-
rnenn í viðbót við Almanak og Andvara allar þær bækur, sem Mennta-
málaráð lcggur fé til að gefa út á þessu tim.vbili." —
Tillaga G. Sv. er svohljóðandi:
„Aðalfundur Þjóðvinafélagsins skorar á félagsstjórnina að leita sam-
vinnu við Menntamálaráð um bókaútgáfu, þannig að félagsmenn geti
fengið meiri bókakost en nú er, að óbreyttu árgjaldi.
Jafnframt skorar fundurinn á stjórnina að vinna að því að auka fé-
lagatöluna eftir því sem verða má.“ —