Andvari - 01.01.1971, Blaðsíða 35
andvari
IIIÐ ÍSLENZKA ÞJÓÐVINAFÉLAG
33
Á sama hátt vill Þjóðvinafélagið standa að sínu leyti straum af útgáfu
Andvara, en hann hefur nú lengi verið fjárhagslega á vegurn Menningarsjóðs
eins. Rætt 'hefur verið um, að hann verði á 'þessu ári (1968) gerður aftur að
ársriti og ákveðið, að ritstjórar hans verði tveir, sinn frá hvorum aðila, eins
og fyrst eftir að honum var breytt í hið nýja horf.
Stjórn Hins íslenzka þjóðvinafélags telur loks rnjög æskilegt, að félagið
fái nokkur fjárráð og svigrúm til frekari útgáfustarfsemi. Af verkefnum, sem
til greina koma og rædd hafa verið, má nefna ljósprentun þeirra binda Bréfa
og ritgerða Stephans G. Stephanssonar, þ. e. 1. og 2. bindis, sem til þurrðar
eru gengin, ennfremur útgáfu úrvals úr hréfum til Stephans G. Stephanssonar,
en þar er af geysimiklu efni að taka. Þá hefur verið hreyft nauðsyn útgáfu
kennslubóka á menntaskólastiginu, en hún er orðin mjög brýn, auk þess sem
það ætti að vera þjóðlegt metnaðarmál, að til séu vandaðar íslenzkar kennslu-
bækur í sem flestum greinum.
Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri fyrir árið 1968 kostaði Islandsalmanakið
alls um 140 þúsund krónur, en Þjóðvinafélagsalmanakið um 260 þúsund.
Heildarkostnaðurinn af Andvara, 13 arka hefti, er prentað yrði í 4000 eintök-
um, er áætlaður 300 þúsund, og kæmu þá 150 þúsund í kostnaðarhlut Þjóð-
vinafélagsins.
Tilboð hefur verið fengið frá Lithoprenti um ljósprentun 1. og 2. bindis
Bréfa og ritgerða Stephans G. Stephanssonar, alls 644 blaðsíðna, og hljóðar
það upp á 156.500, ef um 500 eintök er að ræða, en kr. 208.300, ef eintökin
eru eitt þúsund. I tilboði þessu er ekki gert ráð fyrir bandi, það kemur til
viðbótar.
Kostnaðarliðirnir verða þá þessir:
íslandsalmanak .................................... 140 þúsund
Þjóðvinafélagsalmanak ............................. 260 —
/2 Andvari......................................... 150 —
Bréf og ritgerðir Stephans G. Stephanssonar, 1. og
2. bindi, ljósprentuð í 500 eint. + band .... 200 —
Onnur verkefni..................................... 250 —
Samtals 1000.000.00
3