Andvari - 01.01.1978, Síða 20
18
HALLDÓR KRISTJÁNSSON
ANDVARl
stjórnmálasögunni og lagður grundvöllur að þeirri stjórntræði, sem kennd
er við velferðarþjóðfélag.
A Islandi gerðust þau tíðindi 1931, að Sjálfstæðisflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn komu sér saman um breytta kjördæmaskipun og kosninga-
lög gegn vilja Framsóknarflokksins. Þar með var lokið hlutleysi Alþýðu-
flokksins, og lögð var fram á Alþingi tillaga um vantraust á stjórnina. Aður
en hún væri rædd, rauf Tryggvi Þórhallsson forsætisráðherra þingið. Var
því mætt með fjöldafundum til mótmæla og aðsúgur gerður að bústað for-
sætisráðherra kvöld eftir kvöld. Stjórnarandstöðunni til hugnunar baðst
Tryggvi Þórhallsson lausnar fyrir báða meðráðherra sína, en í þeirra stað
var Sigurður Kristinsson forstjóri S.Í.S. skipaður ráðherra með Tryggva,
og sátu þeir sem bráðabirgðastjórn fram yfir kosningarnar. Framsóknarflokk-
urinn vann kosningarnar, og í stað Sigurðar Kristinssonar tók Jónas Jónsson
sæti sitt í stjórninni eftir kosningar, og Ásgeir Ásgeirsson varð fjármálaráð-
herra.
Flófust nú samningatilraunir um kjördæmamálið, og varð að lokum að
samkomulagi að láta hin görnlu kjördæmi og kosningareglur haldast, fjölga
þingmönnum Reykjavíkur og hafa auk þess 11 þingsæti til jöfnunar milli
flokka. Hinir sex landskjörnu þingmenn hurfu, svo að þingmönnum fjölg-
aði alls um sjö. Jafnframt þessu samkomulagi urðu stjórnarskipti sumarið
1932. Ásgeir Ásgeirsson, sem mestan hlut Framsóknarmanna átti að því að
samkomulag náðist, myndaði stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Ráðherrar
með honum voru Magnús Guðmundsson og sr. Þorsteinn Briem. Stjórnar-
stefnan var í heild mótuð af fornum og viðurkenndum fræðum, enda sagði
forsætisráðherrann, að eðlilegt væri, að miðflokkur ynni til vinstri í góðæri,
en hægri á krepputímum. Þó átti ríkið hlut að atvinnubótavinnu með bæjar-
félögum, en á það mun nánast hafa verið litið sem hjálp ríkissjóðs við
þurfamannaframfæri sveitarfélagsins.
Stjórnarskrárbreyting var samþykkt 1933, og kosningar voru það vor.
Þá tapaði Framsóknarflokkurinn sex þingsætum. Um haustið fóru fram
viðræður um stjórnarsamstarf Framsóknarflokks og Alþýðuflokks, senr sam-
tals höfðu 23 þingmenn af 42. Var þeim komið svo langt, að gengið var
frá málefnasamningi að mestu. Hann var í anda hinna nýju kenninga.
Reyna skyldi að milda áhrif kreppunnar með því að halda uppi almennri
kaupgetu og nota opinbert fé í því skyni. Tryggvi Þórhallsson skrifaði
grein í blaðið Framsókn um samstarf bænda og verkamanna, þar sem
hann tengdi saman hagsmuni hvorra tveggju og sagði, að 10 aura hækk-