Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1978, Page 43

Andvari - 01.01.1978, Page 43
andvari NÓTTINA FYRIR PÁSKA 41 Þannig voru þrjú hjú í Mýrartungu, á Gillastöðum, Hafrafelli og á öðru bú- mu á Skerðingsstöðum. Tvö hjú voru á þremur bæjum, Borg, Kinnarstöðum og í Skógum. Á þrettán búum var ein vinnukona á hverju og ekki annað hjúa, en á sex búum var ekkert vandalausra hjúa. Áður var sagt, að 22 uppkomin börn unnu foreldrum sínum. Vandi er að greina milli þeirra og hjúa. Mörg hjú hafa verið systkini annarshvors hús- bændanna. Það sést á fánefndum föð- urnöfnum. Og fleiri hafa ættarböndin efalítið verið. Hjúin voru á ýmsum aldri, flest þó á milli tvítugs og þrítugs, en tvö skera sig úr með ólíkindum. Annað er hjúið Guðrún Eyvindardóttir á Kambi, 73ja ára ekkja, örvasa. Hitt er hjónanna þjenari á Reykhólum, Bergljót Sigurð- ardóttir 11 ára. Þorsteinn Sigfússon r Miðhúsum, vinnuhjú þar, var aldurs- forsetinn meðal vinnumannanna, réttra sjötíu ára. Nú fyrirfinnst ekki vinnuhjú framar í Reykhólasveit, hvorki að titli né í reynd, en milli þriðji og fjórði hver íbúi var vinnuhjú árið 1703. Vistarbandið er horfið. Horfin eru gömlu húsakynnin, gömlu verkfærin, gömlu vinnuaðferð- irnar og gömlu vinnuhjúakjörin. Mann- talsblöðin segja okkur ekkert um neitt af þessu. Það sem til er um þau atriði er annars staðar að finna, og þar væri margt fróðlegt að sjá. 2. Illa kj'önl( aj slcemum veiklei\a. Þegar efnin voru engin, þegar heilsan bilaði, þegar dauðinn tók forsjá heimil- isins, þegar líkamskrafturinn þvarr og ellin beygði erfiðisfólkið og þegar til engra skyldmenna var að flýja, þá var ekkert fangaráð annað en sveitarfram- færið. Oftast voru hin þungu spor á fund hreppstjóranna ekki stigin fyrr en í síðustu lög. Ævinlega hafa þeir full- orðnu farið nærri um hvað í vændum var og verið brynjaðir gegn því, sem við mundi taka, hver eftir sínu eðli. En hvernig mun þessu hafa verið farið um munaðarlausu börnin? Þegar foreldr- anna missti við, þegar móðirin varð ekkja, eða þó ekki væri nema að efni foreldranna þryti, þá var það eitt fyrir hendi að fara til vandalausra. Þá valt hamingja og velferð alfarið á því, í hverra höndur börnin komust. Kæmi viðkvæmt og veiklað barn á heimili, þar sem harðýðgi ríkti, húskuldi, sálarkuldi, vinnuharka og naumur kostur, þá var viðbúið, að kyrkingurinn yrði slíkur, að annaðhvort ylli hann beinlínis aldurtila eða hann yrði varanlegur upp á lífstíð- ina alla. Eftir þær tæpar þrjár aldir, sem iiðnar eru frá manntalinu 1703, er það eitt víst, að við höfum mest getgátur og grunsemdir við að styðjast um það, hvernig ævi ölmusubarna í rauninni var. Þó sýnist það greinilegur vottur um mannúð og náunganskærleika, að átta munaðarlaus börn voru á framfæri án milligöngu yfirvalda sveitarinnar. Það er eða var 1 jósgeisli í dimmu þessa fjar- læga tíma. Annars hefir sú aðalregla gilt að sundra fjölskyldum, leysa heimilin upp, þegar þau komust á sveitina. Ævinlega hafa einhverjir beðið færis að hreppa
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.