Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1978, Page 63

Andvari - 01.01.1978, Page 63
andvari UM RÉTTLÆTI í ÍSLENZKUM FORNSÖGUM 61 sínu. Skýringar á andstæðum góðs fólks og ills eru næsta eftirtektarverðar: „Gjafir þær . .. er náttúrugjafir heita og sameiginlegar eru góðum og vond- um, það er afl, vit og fríðleikur og allt það er hafa má góður maður, svo að eigi minnkist hans verðleikur við til guðs, og vondur maður, svo uð eigi æxlist hans verðleikur við fyrir guði.“ En á hinn bóginn eru and- legar gjafir, „þær er engir mega hafa nema góðir menn og eigi eru sameigin- legar með vondum mönnum: það er styrkt við freistni, þolinmæði við mótgerðamenn sína, réttlæti um alla hluti, hófstilling við allt.“8 Styrkt, réttlœti og hófstilling töldust þrjár af höfuðdyggðum mannsins ekki ein- ungis með Forn-Grikkjum, heldur einnig í kristinni siðfræði; fjórða dyggðin var vitra (prudentia) eða vizka, og var hún annars eðlis en venjulegt vit: slægð Marðar í Njálu ber vitni um mikla vitsmuni, en hún er andstæð við vizku Njáls. Þegar ýmsir hlutir kirkju voru skýrðir á táknrænan hátt, segir meðal annars: „Fjórir hornstafir merkja fjóra höfuð- kosti, það er vitra og réttlæti, styrkt og hófsemi.“° 1 mannlýsingum Islend- ingasagna skipta höfuðdyggðir eða höfuðkostir meginmáli, og yfirleitt fara tvær eða fleiri saman; svipuðu máli gegnir um samstöðu höfuðlasta. Lærðar kenningar um réttlæti er að finna víðs vegar í þýddum ritum, og má hér minna á ummæli Alexanders sögu, sem lýsir réttlætinu svo: „Justicia . . . vopnar lögin og ver réttindin og hallar engan veg sínu réttsýni.“ Aristóteles gefur söguhetjunni ráð: „Láttu . .. fyrir hvetvetna fram rétt- læti fylgja öllum þínum verkum. Eigi skal þó réttlætið eitt saman, því að þar við skal tempra miskunnina.1110 Á dánarbeði gefur Davíð konungur Salómon syni sínum ráð: „Stýr þú ríki þínu með viturlegu réttdæmi, svo nokkru refsingasamur, að eigi sýnist ríki þitt stjórnarlaust fyrir þinnar ofbleyði sakir. Gæt og með mundangshófi harðrar refsingar, að eigi verðir þú fundinn miskunnarlaus með ofmiklum grimmleik. . . . Ver þú, son minn, djarfur og harðhendur og þó hófsamur um alla hluti.“u Ýmsir aðrir staðir í gömlum bókum leggja áherzlu á, að réttlæti sé ekki einhlítt í sjálfu sér: „Eigi líkar guði almáttugum vorkunnin ein saman, né hegningin án vor- kunn.“ „Satt réttlæti hefir vorkunn í sér, en logið réttlæti reiði.“ „Því skipaði guð ... alla hluti vel, að hann stillir réttvísi með miskunn og niiskunn með réttvísi, að hvorgi sé án annarri.“12 Hugtakið réttlæti í sögum verður ekki skilið til hlítar, nema teknar séu til greina hugmyndir um afbrot, yfirbætur og refsingar. Samkvæmt krist- inni siðfræði eru allir dauðlegir menn brotlegir: „Enginn jarðlegur maður lifir syndalaust," segir í Stjórn, og er þar um að ræða bergmál frá Predikar- anum: „Engi maður er svo réttlátur, að eigi misgeri.“ Hitt er svo annað naál, að „svo skal mönnunum unna, að þeygi séu misgerðir þeirra elskað- ar“j og „með þeim hætti skal hver bæta sem hann misgerir.“13 Höfundi Laxdœlu virðist hafa verið þessi ritningarstaður í huga, þegar hann lýsti
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.