Menntamál - 01.12.1963, Síða 53
MENNTAMÁL
139
kostuðu þá: stóll kr. 462,00 og borð kr. 550,00. Húsgögn
Gagnfræðaskóla Kópavogs kostuðu á sama tíma kr. 925,00,
en þau höfðu ekki þann útbunað, sem húsgögn Kennara-
skólans, að snúa má setunni út frá plötusepanum, svo auð-
veldara er að setjast við borðið og standa upp frá því.
Venjuleg tveggja manna borð og tveir stólar kostuðu s. 1.
vetur kr. 1.655,00, eða sætið kr. 827,50.
í Bandaríkjunum eru hin sambyggðu húsgögn stillanleg
í samræmi við líkamshæð nemenda. Sú aðlögun er fram-
kvæmd með tveim skrúfum.
A THS.
Mér jrykir skylt að taka fram eftirfarandi um reynslu af
þessum húsgögnum í Kennaraskólanum.
Seta og stólbak, gerð áklæðis á setu og baki og efra borð
borðplötu þykir ágœtt, og flestum fellur lag borðplötu vel,
en nærfellt helmingi nemenda þykir hún of lítii og um
þriðjungur nemenda telja borðin í lægsta lagi. Gaili þykir,
að fjarlægð stóls frá borðplötu er föst. í heild eru pú nem-
endur ánœgðir með borðin, nema „vandræði eru með skrúf-
urnar undir borðunum, þær rífa sokka kvenfólksins, einnig
er borðplatan að neðan óslétt, svo að hún rífur einnig
sokkana."
Br. Jóh.