Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 84
StarfsfræÖslunámskeiö
í Kennaraskólanum
11.—21. sept. 1963.
Samkvæmt ályktun Alþingis frá 1. júní 1960, þar sem
skorað er á ríkisstjórnina að láta athuga möguleika á því,
að starfsfræðsla verði tekin upp í skólum, fól menntamála-
ráðuneytið fræðslumálastjóra að efna til námsskeiðs fyrir
kennara um starfsfræðslu.
Námsskeið þetta var haldið í Kennaraskóla íslands við
Stakkahlíð dagana 11. til 21. sept. s. 1.
Undirbúning námsskeiðsins önnuðust Helgi Elíasson,
fræðslumálastjóri, og dr. Broddi Jóhannesson, skólastjóri,
í nánu samstarfi við Iðnaðarmálastofnun íslands og Magnús
Gíslason, námstjóra gagnfræðastigsins í Reykjavík. Stefán
Ól. Jónsson, kennari, sá um daglega framkvæmd náms-
skeiðsins og stjórnaði flestum umræðufundunum.
A námsskeiðinu var meðal annars fjallað um hlutverk og
gildi starfsfrœðslu, sáljrœðilegar forsendur hennar og meg-
insjónarmið, starfshœtti og kennslutœki og skipulag starfs-
frœðslu.
Aðalleiðbeinendur námsskeiðsins voru Danirnir A.
Sögaard Jörgensen, starfsfræðsluráðunautur, og Kai Sören-
sen, kennari í starfsfræðslu við Kennaraháskólann í Kaup-
mannahöfn.
Auk þeirra fluttu erindi Sveinn Björnsson, frkvstj.: Kerf-
isbundið starfsmat. Þórir Einarsson, cand. oecon.: íslenzkt
atvinnulíf, ástand þess og horlur. Kristinn Björnsson, sálfr.:
Sálfræðileg sjónarmið við starfsval.