Menntamál - 01.12.1963, Síða 92
178
MENNTAMÁL
Fæstum munu vaxa í augum breytingar þær, er orðið
hafa á íslandi og veröldinni síðastliðna þrjá áratugi, ef
fram er horft, ]dví að okkur grunar, að þar sé enn meiri
tíðinda að vænta, en hinu er líkara, að Islendingar hafi
skipt á skrefum dvergs og risa á þessari öld, þar sem þeir
hafa sótt fram á annað borð frá háttum fyrri tíðar. Á það
ekki sízt við afskipti löggjafar- og framkvæmdavalds af ís-
lenzkum skólum og þróun þeirra. Framvinda á öllum svið-
um þjóðlífsins hefur verið háð henni. Það fylgir embætti
fræðslumálastjórans, að enginn einn maður hefur haft
jafnumfangsmikil afskipti af skólamálum landsins og hann.
Þar koma saman flestir þræðir, þar knýja á þarfir flestra
landsmanna á fræðslu, fyrst og fremst þörfin á almennri
fræðslu á skyldunámsstigi og nokkru sérhæfðari menntun
á gagnfræðastigi, en auk þess, beint eða óbeint, sérþarfir
hinna ýmsu einstaklinga, hópa og stétta í þjóðfélaginu, er
sækja fram til nýtilegrar menntunar. Þannig er fræðslu-
málastjórinn í sífelldri snertingu við þær hræringar þjóð-
lífsins, er krefjast fræðslu í skólum landsins, og sú stað-
reynd mun ekki vefengd, að þekking sé meginþáttur fram-
vindunnar á líðandi stund. Af þessu er ljóst, að Helgi
Elíasson fræðslumálastjóri hefur haft allsherjar afskipti af
skólamálum landsins fram yfir aðra núlifandi Islendinga.
Ég ber ekki við að lýsa þessu starfi, sem ég þekki aðeins
álengdar, en erilsamt er það í mikilvægum daglegum
ákvörðunum, tafsamt í sífelldum setum í ráðum, nefndum,
á fundum, samkomum og þingum, heima og erlendis, og
griðalausu kapphlaupi við að fullnægja þörfum breytts
þjóðlífs.
Störf sín öll, flest vandasöm, hefur Helgi Elíasson unnið
af dæmafárri ósérplægni, lipurð og bjartsýni. Hann er
bjartsýnn maður. Æska Islands í dag réttlætir bjartsýni
hans.
Menntamál árna honum allra heilla í starfi og einka-
lífi.