Menntamál - 01.12.1963, Page 97
JÓNAS PÁLSSON:
SálfræSiþjónusta í skólum.
MENNTAMÁLUM liefur borizt í liendur greinargerð um sál-
fræðiþjónustu í barnaskólum Reykjavíkur árin 1960—1963.
Með leyfi forstöðumanns Sálfræðideildar skóla birtast hér kafl-
ar úr greinargerðinni og einnig nokkur töluleg atriði úr árs-
skýrslum fyrir þessi þrjú starfsár, dregin saman í eitt.
Sálfræðideild skóla í Reykjavík hefur starfað um þriggja
ára skeið. Hún er rekin af Reykjavíkurborg og er deild í
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur.
Verksvið og hlutverk.
Verkefni sálfræðiþjónustunnar eru hliðstæð og við sams
konar stofnanir erlendis, t. d. á Norðurlöndum (skole-
psykologiske kontorer), enda beinlínis sniðin eftir þeinr,
einkum þó stofnuninni í Drammen. Nánar tilgreint má
lýsa starfssviðinu þannig:
Sálfræðideild skóla framkvæmir sálfræðilega, félagslega
og uppeldislega rannsókn á skólabörnum, sem eru afbrigði-
leg að einhverju marki í námi eða lregðun f skóla og á
heimili.
Að formi til á þessi þjónusta að vera til reiðu öllum
börnum og unglingum á fræðsluskyldualdri, en í reynd
hefur starlið að mestu takmarkazt við börn í barnaskólum
borgarinnar. Starfssvæði er Reykjavíkurborg.
Af einstökum vandamálum barna, sem valda því, að leitað
er til deildarinnar, má nefna:
a) Óvissa um, hvort börn hafi náð nægum þroska til
að hefja nám í barnaskóla.