Menntamál - 01.12.1963, Blaðsíða 106
192
MENNTAMÁL
Þegar lokið er athugun á nákvæmni og forsagnargildi
Levinprófsins, virðist liggja fyrir, að skólayfirvöld taki
endanlega ákvörðun um notkun prófsins og þær aðgerðir,
sem í kjölfar þess hljóta að fylgja.
Höfðaskóli.
Haustið 19(il ákváðu íræðsluyfirvöld Reykjavíkur að
koma upp vísi að sérskóla fyrir vangefin börn og mjög tor-
næm. Við tilkomu sálfræðiþjónustu skólanna skapaðist að-
staða til að greina þessi börn á kerfisbundin hátt frá öðr-
um flokkunt afbrigðilegra barna. Sálfræðideild skóla var
falið að vinna ráðgefandi störf við hinn nýja skóla, jafn-
framt því sem deildin annast rannsókn allra barna, sem til
greina kemur að í skólann lari. Þar eð starfsemi skólans
hefur af þessum sökum að talsverðu leyti verið á snærum
deildarinnar, skal stuttlega skýrt frá hlutverki hans og starfs-
háttum til þessa.
Börn þau, sem skólann sækja, eiga flest að ná sæmilegri
lestrar- og skriftarkunnáttu, hagnýtri leikni í einskonar töl-
um og fá nokkra fræðslu í lesgreinum og félagslegum efn-
um, sem þeim er viðráðanleg og má að gagni verða. — Að
því er stefnt, að nemendur sæki þennan sama skóla allt
til 16—17 ára aldurs.
Allstór hluti barna á þessu þroskastigi hafa orðið fyrir
veikindum eða slysum, sem hafa skaddað taugakerfi þeirra
og skert námshæfi. —
í skólanum er nú veitt kennsla í handavinnu, leikfimi
og „rytmik“.
Foreldrar eiga frjálst val, hvort þau senda börn sín í
skólann, en nær alltaf hafa þeir farið að ráðum deildarinn-
ar í þessu efni.
Skólinn hefur frá upphafi verið til húsa í Ármanns-
heimilinu. Þar eru nú 6 bekkjardeildir með samtals um
60 börnum. Kennarar eru þrír, auk kennara í handavinnu