Menntamál - 01.12.1963, Side 108
194
MENNTAMÁL
lestrarörðugleikum og síðan aðgerðum til aðstoðar hinum
fjölmenna hópi barna með lestrarörðugleika.
Forstöðumaður leitaði því eftir, að deildin fengi að sinna
rannsóknarstarfi, þótt í litlu væri.
Fræðslustjóri Reykjavíkur sýndi þessari viðleitni mikla
velvild og studdi málið, en Vísindasjóður íslands veitti
styrk til rannsókna á skólaþroska barna, stöðlunar þroska-
prófs og athugun á fylgni prófsins við námsárangur. Nam
styrkur Vísindasjóðs kr. 25.000,00 árið 1962 og kr. 50.000,00
árið 1963 gegn jafnháu framlagi frá Reykjavíkurborg.
Úrvinnsla er undir stjórn Þóris Bergssonar, trygginga-
fræðings, en unnið úr gögnum í skýrsluvélum ríkisins. Er
það í fyrsta sinn, að unnið er úr gögnum við slíka rann-
sókn liér í skýrsluvélum. — Ráð er iyrir gert, að niðurstöður
af þessari rannsókn liggi fyrir á næsta ári, 1964. — Það
er von Sálfræðideildar skóla, að unnt verði að vinna áfram
að einhverjum hagnýtum rannsóknum, þótt í smáum stíl
yrði.
ÚR ÁRSSKÝRSLUM
Aðalástæður athugunarbeiðna, sem tilgreindar voru, þeg-
ar beðið var um athugun:
Vafi um skólaþroska.......................... 38 — 11,4%
Litlar framfarir í námi..................... 135 — 40,6%
Lestrarörðugleikar........................... 48 — 14,4%
Skólasókn áfátt eða tregða við að sækja skóla 19 — 5,7%
Taugaveiklunareinkenni ...................... 35 — 10,5%
Hegðunarvandkvæði ........................... 23 — 6,9%
Heimilisástæður (Jaðarumsókn) ............... 29 — 8,7%
Ýmsar ástæður ................................ 6 — 1.8%
Börn samtals 333