Menntamál - 01.12.1963, Qupperneq 140
226
MENNTAMÁL
inn í Hagaskólanum 13.—15. júní 1963, beinir því til
fræðslumálastjórnarinnar, að svo fljótt sem við verður
komið verði hrundið í framkvæmd eftirfarandi tillögum,
sem fundurinn hefur samþykkt:
1. Komið verði á fót fastri deild eða stofnun á vegum
fræðslumálastjórnarinnar, sem m. a. gegni Jrví hlutverki:
a) að fylgjast með og kynna sér á hverjum tíma nýjung-
ar og tækni í námstilhögun og skólastarfi með öðrum Jrjóð-
um og meta, hvað af Jrví kynni að henta við íslenzka stað-
hætti,
b) að gera tilraunir með námsefni, námstilhögun og
kennsluaðferðir í einstökum skólum eða bekkjardeildum,
eða í sérstökum tilraunaskóla, sem stofnsettur yrði,
c) að vinna stöðugt að endurskoðun námskrár barna- og
gagnfræðastigsskóla og koma á þeim breytingum, sem til-
raunir og athuganir hefðu leitt í ljós, að nauðsynlegar væru,
d) að fylgjast með því, að kennslutilhögun og prófkröf-
ur skólanna séu ávallt í sem fyllstu samræmi við Jrað meg-
inhlutverk þeirra að stuðla að alhliða þroska nemendanna.
e) að marka stefnu um, hvernig og að hve miklu leyti
próf skulu notuð í skólum,
f) að stuðla að því að þroskandi félagslíf og tómstunda-
starf sé eflt í skólunum og markvisst notað til að auka upp-
eldisáhrif Jreirra.
g) að gera, Jregar nauðsyn ber til, tillögur um þær breyt-
ingar á fræðslulögunum, sem skólastarfið við breyttar að-
stæður kann að krefjast.
2. Til bráðabirgða, meðan sú skipan, sem gert er ráð fyrir
í tölulið 1, er ekki á komin, leggur fundurinn til, að mennta-
málaráðherra skipi nú Jægar nefnd, er vinni að og leggi
l'yrir fræðslumálastjórn tillögur um eftirfarandi tilhögun
og breytingar á gagnfræðanámi, sem komi til framkvæmda
á næsta skólaári eftir því, sem við verður komið:
a) að fyrir liggi námskrá fyrir 3. og 4. bekk gagnfræða-
stigs, er tryggi, að sömu kröfur séu í meginatriðum gerðar