Menntamál - 01.12.1963, Side 141
MENNTAMAL
227
til þrenns konar gagnfræðaprófs bóknáms-, verknáms- og
verzlunardeildar við alla gagnfræðaskóla.
b) að samræmdar verði í skólanum kröfur til gagnfræða-
prófs i íslenzku, reikningi og erlendum málum, e. t. v. með
því að samræmd próf verði tekin upp í þessum greinum.
c) að stundafjöldi á skólaári í gagnfræðaskólum verði
aukinn með nokkurri lengingu árlegs starfstíma (byrja fyrr
að haustinu), eða fjölgun vikulegra kennslustunda (t. d.
í héraðsskólum).
d) að breytt verði tilhögun prófa í skólanum, þannig að
þau skerði þann tíma, sem fer til venjulegrar kennslu, mun
minna en nú er.
e) að samin verði sérstök námskrá fyrir seinfærasta hóp-
inn í 1. og 2. bekk gagnfræðastigs.
f) að nemendur, sem hyggja á langskólanám, eigi kost
á að ganga undir viðbótarpróf við lok 1. bekkjar, er veiti
þeim rétt til setu í landsprófsdeild. Námsefni til landsprófs
sé þá sem jafnast skipt milli 2. og 3. bekkjar (sbr. till. skóla-
málanefndar frá 1958).
Eftir ræðu lramsögumanns óskaði fundarstjóri eftir umræðunt. Til
máls tóku eftirtaldir:
Helgi Elíasson,, Árni Þórðarson, Þórarinn Þórarinsson, Jóhann
Frímann, Guðrún l’. Helgadóttir, Ástráður Sigursteindórsson, Oddur
Sigurjónsson, Þorsteinn Matthíasson, Sveinbjörn Sigurjónsson, Jón-
as Pálsson, Sigurjón Jóhannesson og Kristján Gunnarsson.
Þar sem ekki voru fleiri á mælendaskrá, tilkynnti fundarstjóri að
umræðum væri lokið og gengið yrði til atkvæða um tiilögurnar eftir
fundarhlé, sem gert yrði, þar sem fundarmenn væru boðnir til kaffi-
drykkju á vegunt fræðslumálastjóra.
Undir borðum ávarpaði Guðmundur G. Hagalín bókafulltrúi
fundarmenn og ræddi unt bókasöfn. Hann bcindi því til skólastjór-
anna, að þeir tækju upp |iá venju, að nemendum skólanna yrði kennt
að flokka bækur og að nota bókasöfn. Það myndi hjálpa nemendum
bæði í námi og í Hfinu sjálfu og jafnframt stuðla að þvf, að skól-
arnir geti notið þeirra blunninda, sent lög um bókasöfn heimila.
Strax og fundur bófst að nýju, bar fundarstjóri fyrri lið tillögunn-
ar undir atkvæði. ITann var samþykktur samhljóða.