Menntamál - 01.12.1963, Qupperneq 143
MENNTAMÁL
229
Svohljóðandi rökstudd dagskrá barst frá Árna Þórðarsyni
og Ólafi Þ. Kristjánssyni:
„Þar sem fundurinn hefur samþykkt efnislega að mestu
það, sem fram er tekið í tillögum prófnefndar, telur hann
rétt að bera tillögurnar ekki undir atkvæði, en líta á þær
sem ábendingar til þeirrar nefndar, sem fundurinn hefur
óskað eftir, að skipuð yrði til að gera bráðabirgðanámskrá
og tillögur um próf fyrir 3. og 4. bekk“.
Fundarstjóri bar dagskrána undir atkvæði.
17 greiddu atkvæði nteð en 1 á móti. Óskar Magnússon gerði
þannig grein lyrir mótatkvæði sínu, að hann væri á móti því, að
árseinkunnir gildi i/3 af heildareinkunn.
Fundarstjóri taldi afgreiðslu tveggja aðalmála fundarins lokið og
bauð orðið frjálst, ef einhver vildi ræða önnur ntál.
Fræðslumálastjóri flutti svohljóðandi tillögu:
„Fundur skólastjóra héraðs-, mið- og gagnfræðaskóla,
haldinn í Hagaskólanum 13.—15. júní 1963, lýsir ánægju
sinni með lög, sem sett hafa verið um Kennaraskétla ís-
lands, og telur æskilegt, að endurskoðuð verði lög itm
menntun kennara á gagnfræðastigi".
Tillagan var samþykkt einróma.
Arni I'órðarson skólastjóri minntist á þær merku tillögur, sem
fjallað hafði verið um og beindi því til fræðslumálastjóra, hvort ekki
yrði mögulegt að kalla saman skólastjórafund, þegar á næsta ári,
helzt í einhverjum héraðsskólanna. Við uppbyggingu fræðslukerfis-
ins er full þörf á sem nánastri samvinnu milli skólastjóranna og
fræðslumálastjórnar.
Ffelgi Elíasson, fræðslumálastjóri kvaðst hafa fullan hug á að
kalla skólastjórana saman aftur, ef til vill á næsta ári. Hann þakkaði
fundarstjórum og fundarmönnum þýðingarmikinn og ánægjulegan
fund og sagðist vonast til Jtess, að samþykktir fundarins yrðu sem
fyrst teknar til athugunar og næðu framgangi.
Óskaði hann öllurn góðrar heimferðar og heilla í starfi.
Þórarinn hórarinsson fundarstjóri Jtakkaði fræðslumálastjóra, fram-
siigumönnum, ritara og öðrum fundarmönnum ágæt störf, en sér-
staklega þakkaði hann skólastjóra Hagaskólans fyrir góðar mótttök-
ur og fyrirgreiðslu og sleit síðan fundi.
Sigurður Eyjólfsson
fundarritari.