Jörð - 01.10.1941, Qupperneq 10
Sigurður á Arnarvatni:
IsSands minni
ísland, ó Island, vor clskaða móðir,
útvörður landa við nyrzta haf!
Norðursins arinn með ódáins-glóðir.
Ættarland þetta oss Drottinn gaf.
Sumarsins sólvangur prúði,
sveipaður blómanna skrúði.
Vctrarins hátignin hæsta,
heiðbjarta, norðljósum glæsta.
Móðir vor kær, bæði hugljúf og hörð,
heilögum minningum vígða jörð!
Astkæra foldin, sem fóstrað oss hefur,
framtíðarland getur hvergi slíkt.
Landið, sem fegurstu fyrirheit gefur,
farsælum gæðum auðugt og ríkt.
Land, þar sem lofgróin standa
listaverk norrænna anda.
Land, þar sem Ijúft er að stríða.
Landið, sem hönd vor skal prýða.
Hér stóð vor vagga, og hér skal vor gröf,
höfundi lífs þegar skilum hans gjöf.
Ættlandið fagra, ó fóstran vor kæra,
fjallprúða drottning við norðurskaut!
Líf vort og krafta að fórn skal þér færa,
foldin, þar lífsrót vor næring hlaut.
Hafperlan fagra, þig fundu
fornmenn á hamingju stundu.
Norðurheims frjálshyggju friðland,
frelsis og listanna griðland.
Alfaðir blessi þig, elskaða land,
ísland, vort föður- og móðurland!
Tilboð JARÐAR
um 150 króna verðlaun (eða jafnvel meir — eftir atvik-
am), fyrir frábært kvæði um ísland eða íslenzkt jbjóð-
erni, stendur óhaggað áfram.
312
JÖRÐ