Prestafélagsritið - 01.01.1922, Page 34
30
S. P. Sívertsen:
Presfafélagsritið.
dómsins er ekki í því fólgin, að fá menn til að gylla fyrir
sér jarðlífið og gera mikið úr gæðum þess, en loka augunum
fyrir hinu, sem hryggir og grætir.
Það er einnig hægt að vera bjartsýnn á annan hátt. Ekki
með því að gylla fyrir sér jarðlífið eða líta bjart á það,
heldur með því að líta til komandi heims, til þess lífs, er
í vændum sé. A þennan hátt voru trúaðir Gyðingar bjartsýnir
um það leyti, er ]esús kom fram. Þessi heimur var að þeirra
dómi aðsetur syndar, neyðar og ófullkomleika. 111 völd höfðu
að þeirra áliti náð yfirráðum yfir heiminum og hann var þess
vegna fullur af eymd, sorg og spillingu. Heimurinn fór sí-
versnandi og hlaut því að farast, til þess að framtíðarvonirnar
um guðsríkið mættu rætast. Endirinn var í nánd. Það var
huggun hinna trúuðu. Eftir endalok þessa heims með allri
syndinni og sorginni, átti nýr heimur að koma, heimur rétt-
lætis og hjálpræðis fyrir alla trúaða. Á þann hátt gat trúaður
maður verið bjartsýnn þrátt fyrir alt, þó ekki með tilliti til
jarðlífsins, því að þegar til þess var litið, varð alt svart fyrir
augum manna. Birtan var framundan, þegar litið var til þess,
er í vændum væri. Trúin gat ekki slept voninni um, að Guð
myndi gera hina guðhræddu sæla að lokum og endurgjalda
þeim í æðra og komandi heimi.
En það var ekki á þennan hátt, sem Jesús var bjartsýnn.
Bjartsýni hans var ekki aðeins bundin við komandi heim.
Guðsríkið, sem hann var kominn að boða mönnum, voru
ekki aðeins komandi gæði, heldur einnig jarðlífsveruleiki. Það
var ekki aðeins nálægt, heldur þegar komið til þátíðarkyn-
slóðarinnar og átti að vaxa að sama skapi sem menn lærðu
að gera vilja Guðs. Bjartsýni Jesú náði bæði til þessa lífs og
hins komandi.
En sé spurt um, hvernig þessari bjartsýni Jesú hafi verið
varið, fæst svarið með því að hugsa til nafnsins, sem kristin-
dóminum í upphafi var gefinn.
Kenning Jesú var fagnaðarerindi og guðspjöll vor nefna
hana ýmist fagnaðarerindið um Guð eða fagnaðarerindið um
rikið. Þarna kemur bjartsýniskenning Jesú fram.