Prestafélagsritið - 01.01.1922, Síða 115
Prestaféiagsritið. Sigur og hnignun Múhameðstrúar. 111
gimsteinum. Þessi Márahöll ber vott um heitu austurlenzku
þrána eftir heimsflótta og leiðslukendu draumóralífi. Það er
»friðurinn« bak við alla hina ytri þrá og baráttu. Það er þessi
paradís, sem í aldingörðunum fyllist af fuglakvaki og í hinum
ríkmannlegu sölum og einmanalegu ilmfyltu herbergjum af
dauðlegum huris, þ. e. fögrum og ástþyrstum meyjum. Alstaðar
glitrar bjartur sólarljóminn, án þess að hitinn sé til ama, og
á nóttunni leggur bláann tunglsbjarmann yfir aldingarða og
veggsvalir, gosbrunna, blómreiti og húsþök.
Þegar Bagdað verður höfuðborg á dögum Abbasida á 8.,
9. öld, nær kalífaríkið hámarkinu. Borg þeirra Mansurs,
Ma’muns og Harun er Resjids er offylt íburðarmiklum muster-
um og ríkmannlegum höllum. Til þess eins að láta eftir dutl-
ungum sínum hafði kalífinn árlega til umráða 300 miljónir
drakma (franka) að peningagildi þátímans, móðir kalífans alt
að 100 miljónum og voldugar ættir, eins og Barmakidarnir,
miljónir svo tugum skifti. Þegar kalífinn fékk dutlunga og
varð leiður á Bagdað, reis upp ný borg að boði hans, bygð
á einu ári, — töfrastaðurinn Samarra. Kostaði sú borg 300
miljónir drakma, en naumast var borgin skipuð íbúum og
kalífinn seztur þar að, áður en hann hvarf aftur þaðan. Hver-
vetna í hinu volduga ríki, frá Indlandi til Andalusíu, skarta
dýrleg musteri og hallir. — En þessi menning hefir ekki
fegurðina eina að markmiði.
Góðir vegir eru lagðir um ríkið þvert og endilangt, brýr
eru bygðar yfir ár, verzlun og siglingar blómgast, hin kraft-
mikla stjórn tryggir frið í landi og ferðamenn fara óhultir
leiðar sinnar. Skólar eru reistir af sönnum áhuga á upplýsingu
og lærdómsiðkunum; í aðallöndum Islams er skólaskylda
komin á áður en hefðarmenn Norðurálfunnar geta stafað nafn
sitt, og ungir Múhameðsmenn, svo þúsundum skiftir, læra
stærðfræði, stjörnufræði og bragfræði, guðfræði og málfræði,
um sama leyti sem Karl mikli, á efri árum sínum og stirðhentur,
var að bera við að skrifa bókstafi. — Jafnvel reglulegir
háskólar, »dar ul junún«, eru bygðir víðsvegar frá Bagdað til
Kairo, til Fez í Marokkó og Cordoba á Spáni.