Prestafélagsritið - 01.01.1922, Side 168
164
Prestafélagið.
Prestafélagsritiö.
Formaður, sem á sæti á Alþingi, gerði nokkrar filraunir í þessa átt, sem
sýndu hve vonlaust var um alt slíkt. T. d. hafði stjórnin, í fjárlagafrum-
varpi sínu, fært niður styrktarféð til fátækra uppgjafapresta og prests-
ekkna, en breytingartillaga frá formanni um að Iaga þetta aftur, fékk mjög
lítið fylgi. I frv. til fræðslulaga, sem fyrir þinginu var, var prestum gert
að skyldu, að vera prófdómarar við barnapróf o. fl., ókeypis, en breyt-
ingartillaga frá formanni um að lagfæra þetta, féll með miklum atkvæða-
mun. Formaður sá þá ekki til neins að bera fram breytingartillögu um
að setja inn í fjárlögin aftur styrk þann, sem prestar fengu áður til þess
að sækja synódus, því að það er ekki nema til skapraunar, að bera
fram það, sem fyrir fram er dauðadæmt.
Félagsstjórnin athugaði tillögu síðasta fundar um það, hvort hægt
mundi að fá breytingu á þeim kjörum, sem prestar yrðu við að búa ef
þeir hefðu gert jarðabætur fyrir Ræktunarsjóðslán. En ekki er nein leið
sjáanleg til þess að fá þessu breytt. Prestar hafa þar sömu kjör og aðrir
og þau eru talin sérleg vildarkjör. Einir 5 prestar hafa nú slík lán, og
auk alls þessa má við því búast, að Ræktunarsjóðurinn sé brátt úr sög-
unni sem sérstök lánsstofnun, því að hann á að ganga inn í Ríkisveð-
bankann fyrirhugaða.
Félagsstjórnin ákvað að halda Prestafélagsritinu áfram í sama horfi
og verið hefir, og réði ritstjóra þann sama og áður, prófessor Sig. P.
Sívertsen. Fór formaður til forstjóra prentsmiðjunnar Qutenberg, og
samdi við hann um þau hagfeldustu kaup á pappír í ritið, sem unt var.
Tilmæli komu frá féiaginu Germania, um að því væru látin f té ókeypis
8 einlök af Prestafélagsritinu til útbýtingar meðal þýzkra fræðimanna og
Islandsvina, sem ekki geta keypt íslenzkar bækur nú sakir lággengis
þýzka marksins. Þótti félagsstjórninni sjálfsagt, að verða við þeim til-
mælum, eins og aðrir útgefendur munu hafa gert.
Þá barst félagsstjórninni boð frá Stúdentafélaginu um að senda full-
trúa prestafélagsins til þess að taka þátt í trúmálaumræðum þeim, sem
fram fóru í Nýja Bíó í vetur. Svaraði stjórnin því, að hún gæti ekki
orðið við því boði af þeim sökum, að Prestafélagið sem slíkt gæfi sig
ekki við trúmálum og félagsstjórnin hefði því ekkert umboð til þess að
koma fram í því efni fyrir félagsins eða félagsmanna hönd.
Þá gat formaður þess, að félagsstjórnin hefði haft til athugunar tvö
mál, sem gott gæti verið að félagið beitti sér fyrir: umbætur kirkjugarða
og lestrarfélag innan Prestafélagsins, og mundi stjórnin leggja fram á-
kveðnar tillögur um undirbúning þessara mála.
2. Þá gaf ritstjóri Prestafélagsritsins, prófessor Sig. P. Sívertsen, skýrslu
um það. Kvað hann 4. árgang í þann veg að koma út, og skýrði frá
innihaldi þess. Beindi hann þeirri uppástungu til fundarmanna, að leitast
væri við, að afla ritinu fastra áskrifenda, svo að hagur þess væri tryggur,
og benti á reynslu hér í Reykjavík, að í nokkrum hluta bæjarins hefði