Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Page 126

Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Page 126
BREYTILEG SJÓNARMIÐ OG AÐFERÐIR VIÐ SÁLFRÆÐIÞJÓNUSTU SKÓLA í 30 ÁR ustu í Noregi og var einn að starfi fyrsta árið. Næsta haust, 1961, fékk hann að ráða tvo sálfræðinga til viðbótar, þá Kristin Björnsson og Örn Helgason. Ari síðar var félagsráðgjafi ráðinn, Guðrún Jónsdóttir, og síðar Edda Benjamínsson kennari sem gerði kunnáttuathuganir o.fl. Heimildir fengust bráðlega til að ráða fleiri starfs- menn, en á sjöunda áratugnum urðu þeir þó ekki fleiri en sex til sjö. SÁLFRÆÐIÞJÓNUSTA f MÓTUN Hér verður nú lýst viðhorfum og aðferðum þessara byrjenda upp úr 1960. Við vorum auðvitað ungir bjartsýnir menn, höfðum háleit markmið og gerðum ráð fyrir að miklu væri hægt að áorka. Sálfræðideild var í rauninni skipulögð sem lítil barnageðdeild, en með sérstöku tilliti til vandamála sem tengdust námi og skólavist. Við vorum kunnugir sálfræðiþjónustu í nágrannalöndum og vissum að nokkur munur var á sjónarmiðum og áherslum. í Noregi var t.d. mest áhersla lögð á geð- vernd í þessu starfi, en í Danmörku var starfið aftur á móti meira tengt skólavist- inni, náminu og aðstoð í námi eða sérkennslu. Við höfðum mest kynni haft af hinu norska skipulagi og viðhorfum, og áherslan varð nokkuð lík hérna. I fyrsta lagi var það okkur metnaðarmál að framkvæma fullgilda greiningu vandkvæða. I því skyni var reynt að vanda til upplýsingasöfnunar bæði í skóla og frá heimili, kennari skrif- aði sérstaka skýrslu til deildarinnar, reynt var að hafa ítarlegt viðtal við foreldra og fá þannig greinargóða „anamnesu" eða lífssögu. Nokkur próf og leikathugun voru notuð. Kennarar og foreldrar fengu ráðgjöf og í sumum tilvikum var notuð með- ferð. Við reyndum alltaf að hafa fáein börn í meðferð, í viðtölum í lækningarskyni, og þá var aðaláherslan oft lögð á nemandann sjálfan, en einnig var talað við for- eldra. Leikmeðferð var á þessum tíma aðferð sem mikið var notuð og útbjuggum við allgóða aðstöðu til að beita þeirri aðferð. Ég held að við höfum reynt að vinna mjög faglega, og heilsufærin eða „klínísk" sjónarmið voru mjög ráðandi. Ég hef oft undrast síðan hversu mikinn tíma við gátum gefið sumum börnum og hverju við gátum afkastað. Tilvísanir komu bæði frá foreldrum og skólum. Tengsl við skólana voru nokkur, en augljós þörf á að auka þau. Jónas Pálsson skrifaði í ársskýrslu frá þessum tíma. Aðalhlutverk sálfræðiþjónustu er að rannsaka orsakir námsörðugleika hjá einstök- um börnum, leiðbeina foreldrum og kennurum um kennslu þeirra og meðferð. Nám er hins vegar aðeins einn þáttur í lífi og starfi einstaklingsins, því verður að rann- saka vandamál hans með hliðsjón afpersónulegu lífi hans, uppeldi, heimilisháttum og félagslegri aðstöðu. Athugun sem beinist aðeins einhliða að námsvandamáli eða hegðunarafbrigði án innsæis og skilnings á lífi einstaklingsins íöllum sínum marg- breytileik er oftast gagnslítil. Því verður sálfræðiþjónusta, sem vera á meira en nafnið tómt, aðskyggnast yfir nýtt svið, en ekki mæna einhliða á námserfiðleika eða tilviljunarkenndfrávik íhegðun barnsins, sálfræðiþjónusta skólanna getur þvíekki bundið sig við vélrænar athuganir á námi og kennslu þótt hlutverk hennar sé öðru fremur að bæta úr á þessu sviði, en sá árangur næst sjaldan svo gagn sé að netna 124
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.