Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Page 69

Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Page 69
JÓHANNA EINARSDÓTTIR hafði verið leikskóli og var staðsett við hliðina á aðalskólahúsnæðinu. I þessu húsi var einnig skóladagvistin. Deginum var skipt í tvær klukkutíma vinnulotur fyrir og eftir hádegi og sérgreinatíma og frjálsan tíma á milli þeirra. Frumkvæðið að þessu fyrirkomulagi kom frá skólastjóranum sem leggur áherslu á mikilvægi þess að hlúa vel að yngstu börnunum þegar þau hefja grunnskólagöngu. Hann segir að skólinn fái ákveðið fjármagn miðað við nemendafjölda skólans í heild og síðan geti þau skipulagt og nýtt þetta fjármagn eins og þeim finnst best. Þau noti t.d. 10 tíma, af 57 sem skólinn hefur í sérkennslu, í stuðning fyrir 6 ára börnin og líti á það sem fyrirbyggjandi aðgerð, þannig að hægt er að skipta árganginum í fámenna hópa. María og helsta samstarfskona hennar voru ánægðar með breytingarnar og fannst að á þennan hátt gætu þær frekar mætt einstaklingsþörfum. Þær skipulögðu starfið þannig að þær skiptu námsgreinunum á milli sín, önnur sá um lestrar- kennsluna en hin um stærðfræðina. Þrátt fyrir þessar breytingar á ytra skipulagi í Bryggjuskóla var innihaldið í nám- inu og kennslufyrirkomulagið hjá grunnskólakennurunum tveimur sambærilegt. Megináherslurnar í starfinu í fyrsta bekk í þessum tveimur skólum var á námsgrein- arnar sem tilgreindar eru í aðalnámskrá grunnskólans, einkum lestur og stærðfræði, og var hópkennsla aðalkennsluaðferðin. Lestrarkennslan er stór þáttur í starfinu í fyrsta bekk og notuðu báðir kennararnir sambærilegar aðferðir. Stafir og hljóð voru kynnt öllum bekknum í Söru tilfelli, en minni hópum hjá Maríu. Sara er reyndur kennari og „leggur inn" stafi og hljóð af mikilli færni og tengir lestrarkennsluna ýmiss konar fræðslu. Sem dæmi má nefna að þegar hún lagði inn stafinn K notaði hún mynd af ketti sem kveikju og sagði þeim frá kettinum, veiðihárunum, klónum, afkvæmunum, heiti karl- og kvendýrsins og fæðu kattarins. í framhaldi af því sköpuðust umræður um ketti sem veiða fugla í görðum, þar sem börnin voru mjög virk. Þegar stafurinn E var á dagskrá kom hún með egg sem hún braut og skoðaði með börnunum og þau ræddu um hvað eggið þyrfti til þess að það kæmu ungar og svo kenndi hún þeim vísuna „Þér frjálst er að sjá hve ég bólið mitt bjó". Hún kennir þeim hljóð stafanna og lætur þau aðstoða við að finna orð með stafnum og kennir þeim að skrifa stafinn. Báðir kennararnir tengdu myndlist við lestrarkennsluna á þann hátt að ákveðin verkefni, sem tengjast þeim staf sem verið er kenna hverju sinni, voru lögð fyrir börn- in. Til dæmis þegar Sara var að kenna stafinn É töluðu þau um él og lærðu vísuna „Frost er úti fuglinn minn" og unnu því næst myndverk sem tengdust því. Eftirfar- andi atvikslýsing er frá því starfi: Sara er uppi við töflu og börnin sitja í sætunum sínum. Hún segir: „Ég ætla að leyfa ykkur að fá svona blað. Það á að snúa svona." Hún sýnir þeim ljósblátt A4 sykurpappírsblað og hengir það upp á töfluna. Segir þeim að þau eigi að gera glugga á blaðið og sýnir þeim ýmsa möguleika við það. „Þegar þið eruð búin að búa til gluggann eigið þið að gera tvo krakka. Síðan þegar þið eruð búin að því ætla ég að biðja ykkur að gera með hvítu svona snjókorn. Síðan er ég með hvítt efni sem þið getið sett svona sem gardínu ef þið viljið hafa þetta voða fínt og þið getið haft fugl 67
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.