Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Page 121

Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Page 121
HRÖNN PÁLMADÓTTIR samskiptum hverju sinni. Það var athyglisvert þegar drengirnir sem um ræðir fengu jákvæð viðbrögð leikfélaga og kennara, við oft ófullburða tilraunum sínum til sam- skipta, þróuðust þau á jákvæðan máta. Eins og fram hefur komið voru drengirnir fremur studdir og hvattir við verkefnavinnu sem fram fór í hópstarfi en í leik við fé- lagana. Litið var svo á að leikurinn væri barnanna og hópstarfið tengt grunnskóla- námi. Ýmsar vísbendingar eru um að litið sé á samskipti sem einangraðan þátt en ekki hluta af því námi sem fer fram í frjálsum leik og hópstarfi á deildunum. Ljóst er að niðurstöðurnar gefa ekki tilefni til alhæfinga en ég tel að draga megi m.a. þann lærdóm að mikilvægt sé að beina sjónum að styrkleika barna í boðskiptum. Þessar niðurstöður eru í samræmi við áherslur sem greina má í nýlegum rannsókn- um þar sem styrkur barna og færni er kannaður í stað þess að einblína á veikleika þeirra og vanhæfni (t.d. Guðrún Kristinsdóttir, 2001; Kristín Karlsdóttir, 2003). Fram komu vísbendingar þess efnis að veita þurfi enn frekari athygli því félags- lega námi sem fram fer í leikskólum. Vert er að gaumgæfa þær kennslu- eða íhlutun- araðferðir sem beitt er í tengslum við samskipti og hegðun og þær hugmyndir sem að baki liggja. Bæði til að styrkja félagslega færni leikskólabarna og til að styðja við þau börn sem glíma við erfiðleika í samskiptum. í ljósi þessa má álykta að starf í leik- skólum kallar í ríkum mæli á fagmennsku. Það er því áhyggjuefni að í leikskólum starfi einungis ríflega 30% fagmenntaðir leikskólakennarar (Hagstofa íslands, 2004). í Aðalnámskrá leikskóla (1999) er kveðið á um nauðsyn stefnumótunar í aðhaldi, aga og samskiptum barna. Þar segir jafnframt að barn þurfi að finna að það hefur hlutverki að gegna innan barnahópsins og að það tilheyrir hópnum. Til að nálgast það mark að gera hverju og einu barni kleift að öðlast hlutdeild í námi sem á sér stað innan barnahópsins verður í auknum mæli að beina sjónum kennara að því mikil- væga ferli sem fer fram í boðskiptum og leik barna. Tengslin milli tungumáls, vits- muna og félagsþroska eru margþætt og nauðsynlegt að líta á þau sem heild. Þess vegna hefur seinkun færni, hvort sem hún er yrt eða óyrt, áhrif á möguleika barnanna til þess að taka þátt í leik með öðrum börnum. HEIMILDASKRÁ Aarts, M. (1996). Marte meo guide. Harderwijk, Holland: Aarts productions. Aarts, M. (2000). Marte Meo grundbog. Harderwijk, Holland: Aarts productions. Aðalnámskrá leikskóla (1999). Reykjavík: Menntamálaráðuneytið. Bae, B. (1987). Selvutvikling og relasjonserfaringer i barnehage - et forprojekt. Nordisk Pedagogik 3,140-150. Bae, B. (1990). Kommunikasjon i den pedagogiske prosessen. Norsk Pedagogisk Tids- skrift 4,187-197. Bae, B. (1992). Relasjon som vágestykke - læring om seg selv og andre. í B. Bae. og J. E. Waastad (ritstj.), Erkjennelse og anerkjennelse. Perspektiver pá relasjoner (bls. 33-60). Ósló: Universitetsforlaget. Bae, B. (1996). Det intcressante i det alminnelige. Ósló: Pedagogisk Forum. Bateson, G. (1972). Steps to an ecology ofmind. New York: Ballantine Books. 119
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.