Hugur - 01.06.2002, Page 34

Hugur - 01.06.2002, Page 34
Hugur Garðar A. Arnason áður en sjúkdómurinn kemur fram. Til þess að sjúkdómurinn geti komið fram þarf fóstur fyrst að myndast og vaxa (og jafnvel fæðast og vaxa nokkuð úr grasi), og það getur ekki gerst nema ótal umhverfis- þættir komi við sögu. Til að gera málið enn flóknara getur það gerst að karlmenn hafi stökkbreytt CF-gen, en verði einungis ófrjóir án þess að fá hin lífshættulegu einkenni sjúkdómsins.8 Af þessum sökum eru engin nauðsynleg tengsl á milli meingensins og sjúkdómsins. Samt sem áður er mögulegt að besta skýringin á sjúkdómnum sé erfðafræðileg, þ.e.a.s. vissar stökkbreytingar í einu geni skýra það að sjúkdómurinn kemur fram. Þannig getur smættarhyggjan haldið velli í þessu dæmi, þó að nauðhyggjan geri það ekki. Sem heimspekingur sakna ég þess að ekki skuli vera nákvæmari umfjöllun um smættarhyggju og nauðhyggju í Genunum okkar. Vís- indagagnrýnin væri beittari ef betur væri athugað hvað býr í þessum hugtökum. Þá hefði mátt tengja þessi hugtök betur umfjölluninni um gerð kjarnsýrunnar og það sem gerist í frumunni. En hættan er auð- vitað sú að slík umQöllun verði of tæknileg fyrir bók sem ætluð er al- menningi. Við verðum því að gera okkur að góðu þá óljósu en alþýðlegu hugmynd um erfðafræðilega nauðhyggju sem er í bókinni, eitthvað á þá leið að erfðafræðilegir þættir ákvarði heilsu, hegðun og persónuleika einstaklinga (eða þeir séu a.m.k. mun mikilvægari en umhverfisþættir í mótun þeirra). Erfðafræðingurinn Richard C. Le- wontin hefur verið óþreytandi við að benda á að þessi tegund nauð- hyggju á við lítil sem engin vísindaleg rök að styðjast.9 Lewontin hef- ur verið sérstaklega iðinn við að gagnrýna notkun nauðhyggjugoð- sagnarinnar til að réttlæta og viðhalda mismunun milli stétta, kyns og kynþátta. Má þar nefna hugmyndir eins og þær að fátækt eða námsárangur ákvarðist að svo miklu leyti afgenum að óþarfi ogjafn- 8 Genin okkar, bls. 61. Steindór nefnir þetta sýnd: „Sami sjúkdómurinn getur haft mismunandi birtingarmyndir, það sem á fræðimáli kallast sýnd (e. pen- etrance).“ Hér virðist vera blandað saman sýnd (e. penetrance) og breytilegu tjáningarstigi (e. variable expressivity). Sýnd er líkurnar á því að einkenni sem tengjast arfgerð komi fram að arfgerðinni gefinni. Tjáningarstig er hversu sterkt einkennin birtast. 9 Richard C. Lewontin er með virtustu erfðafræðingum heims og um leið einn ötulasti gagnrýnandi þeirrar hugmyndafræði og pólitíkur sem hefur fylgt erfðafræði. Meðal helstu bóka hans eru Biology as Ideology: The Doctrine of DNA (New York: Harper-Perennial 1992) og The Triple Helix (Cambridge, Mass.: Harvard University Press 2000). Auk þess er hann meðhöfundur bók- arinnar Not in Our Genes: Biology, Ideology, and Human Nature (New York: Pantheon Books 1984). 32
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.