Hugur - 01.06.2002, Síða 34
Hugur
Garðar A. Arnason
áður en sjúkdómurinn kemur fram. Til þess að sjúkdómurinn geti
komið fram þarf fóstur fyrst að myndast og vaxa (og jafnvel fæðast og
vaxa nokkuð úr grasi), og það getur ekki gerst nema ótal umhverfis-
þættir komi við sögu. Til að gera málið enn flóknara getur það gerst
að karlmenn hafi stökkbreytt CF-gen, en verði einungis ófrjóir án
þess að fá hin lífshættulegu einkenni sjúkdómsins.8 Af þessum sökum
eru engin nauðsynleg tengsl á milli meingensins og sjúkdómsins.
Samt sem áður er mögulegt að besta skýringin á sjúkdómnum sé
erfðafræðileg, þ.e.a.s. vissar stökkbreytingar í einu geni skýra það að
sjúkdómurinn kemur fram. Þannig getur smættarhyggjan haldið velli
í þessu dæmi, þó að nauðhyggjan geri það ekki.
Sem heimspekingur sakna ég þess að ekki skuli vera nákvæmari
umfjöllun um smættarhyggju og nauðhyggju í Genunum okkar. Vís-
indagagnrýnin væri beittari ef betur væri athugað hvað býr í þessum
hugtökum. Þá hefði mátt tengja þessi hugtök betur umfjölluninni um
gerð kjarnsýrunnar og það sem gerist í frumunni. En hættan er auð-
vitað sú að slík umQöllun verði of tæknileg fyrir bók sem ætluð er al-
menningi. Við verðum því að gera okkur að góðu þá óljósu en
alþýðlegu hugmynd um erfðafræðilega nauðhyggju sem er í bókinni,
eitthvað á þá leið að erfðafræðilegir þættir ákvarði heilsu, hegðun og
persónuleika einstaklinga (eða þeir séu a.m.k. mun mikilvægari en
umhverfisþættir í mótun þeirra). Erfðafræðingurinn Richard C. Le-
wontin hefur verið óþreytandi við að benda á að þessi tegund nauð-
hyggju á við lítil sem engin vísindaleg rök að styðjast.9 Lewontin hef-
ur verið sérstaklega iðinn við að gagnrýna notkun nauðhyggjugoð-
sagnarinnar til að réttlæta og viðhalda mismunun milli stétta, kyns
og kynþátta. Má þar nefna hugmyndir eins og þær að fátækt eða
námsárangur ákvarðist að svo miklu leyti afgenum að óþarfi ogjafn-
8 Genin okkar, bls. 61. Steindór nefnir þetta sýnd: „Sami sjúkdómurinn getur
haft mismunandi birtingarmyndir, það sem á fræðimáli kallast sýnd (e. pen-
etrance).“ Hér virðist vera blandað saman sýnd (e. penetrance) og breytilegu
tjáningarstigi (e. variable expressivity). Sýnd er líkurnar á því að einkenni
sem tengjast arfgerð komi fram að arfgerðinni gefinni. Tjáningarstig er
hversu sterkt einkennin birtast.
9 Richard C. Lewontin er með virtustu erfðafræðingum heims og um leið einn
ötulasti gagnrýnandi þeirrar hugmyndafræði og pólitíkur sem hefur fylgt
erfðafræði. Meðal helstu bóka hans eru Biology as Ideology: The Doctrine of
DNA (New York: Harper-Perennial 1992) og The Triple Helix (Cambridge,
Mass.: Harvard University Press 2000). Auk þess er hann meðhöfundur bók-
arinnar Not in Our Genes: Biology, Ideology, and Human Nature (New York:
Pantheon Books 1984).
32