Hugur - 01.06.2002, Side 38
Hugur
Garðar Á. Árnason
sinn: „hinn hlutlæga veruleika“, eins og Steindór hneigist til að
gera. En hvernig ber þá að lýsa þeim flokki manna sem telur sig
þurfa að standa upp og verja vísindin? Kanadíski heimspekingurinn
James R. Brown lýsir viðhorfi sem hann kallar „vísindalegan
rétttrúnað“ (e. scientific orthodoxy) svo: ,fHlutir eru með ákveðnum
hætti og vísindamenn reyna að komast að því; þeir búa yfir ýmiss
konar (skeikulum) aðferðum til þess og hafa hingað til notið tals-
verðrar velgengni.11 Hann bætir við að hlutir, ferli og eiginleikar eru
til óháð okkur; megintilgangur (grunn)vísinda er að leita sannleik-
ans um þá; og aðferðir vísinda duga nokkuð vel þrátt fyrir að vera
skeikular.
Annar stuðningsmaður vísinda er heimspekingurinn Philip Kitcher.
Hann lýsir eftirfarandi grundvallarskoðunum þeirra sem hann kall-
ar dygga fylgismenn vísindanna (e. the scientific faithful): Vísindin
geta útvegað okkur þekkingu á náttúrunni; megintilgangur þeirra er
að útvega þekkingu sem er eins kerfisbundin og endanleg og kostur
er; þekkingu er hægt að nota í verklegum tilgangi, en siðferðilegt mat
á þeirri notkun á að beinast að tækni og pólitískri stefnumótun en
ekki vísindunum sjálfum; og þekking hefur gildi í sjálfri sér sem er
þyngra á metunum en hversdagsleg úrlausnarefni. Báðir aðhyllast að
mestu „vísindatrúna“ (með vissum fyrirvörum), en hvorugur boðar
blinda eða ógagnrýna trú á vísindin. Þeir væru verðugri andstæðing-
ar en eðlisefnafræðingurinn og alþýðufræðarinn Peter Atkins, sem
Steindór beinir spjótum sínum að.13
Nú á dögum kann staða vísinda í samfélaginu að þykja sjálfsögð.
Steindór bendir á að raunvísindin þurftu að hafa mikið fyrir því að
festa sig í sessi í vestrænum samfélögum á nítjándu öld, þ.e. einmitt
á þeim tíma þegar Mendel setti fram lögmál sín um erfðir og Darwin
þróunarkenninguna. Þar sem raunvísindin byggja kennivald sitt að
hluta á því að geta fært okkur sannleikann um tilveruna, þá þurftu
þau að berjast við kirkjuna sem fram að því hafði álitið þetta vera á
sínu verksviði. Þetta kann að hljóma háfleygt, en snerist um jafn jarð-
bundna hluti og samsetningu námsskráa í háskólum og að afla fjár til
rannsókna og kennslu í raunvísindum. Ekki er ljóst af umfjöllun
Steindórs hver þáttur „hugmyndarinnar um hlutlægan raunveru-
13 James R. Brown: Who Rules in Science? An Opinionated Guide to the Wars
(Cambridge, Mass.: Harvard University Press 2001), bls. 10. Philip Kitcher:
Science, Truth and Democracy (Oxford: Oxford University Press 2001), bls. 9.
Sjá einnig bók Ians Hacking The Social Construction ofWhat? (Cambridge,
Mass.: Harvard University Press 1999).
36