Hugur - 01.06.2002, Side 42

Hugur - 01.06.2002, Side 42
Hugur Garðar Á. Árnason er að fínna í samfélaginu til þess að hefja vísindi sín á stall. En Bloor vill segja meira en það. Við hugsum á sama hátt um vísindi og um trú, vegna þess að í hvoru tveggja birtist reynsla okkar af samfélaginu. Steindór rekur greiningu Bloors á vísindaheimspeki Thomasar Kuhn og Karls Popper sem dæmi um hvernig hugmyndir mótast af samfé- laginu. I hugmyndum Kuhns og Poppers, samkvæmt túlkun Bloors, birtist ólík hugmyndafræði: Upplýsing hjá Popper og rómantík hjá Kuhn. Það er áhugavert að bera hugmyndir Poppers og Kuhns sam- an við meginhugmyndir upplýsingar og rómantíkur, en greiningin virðist ekki ná lengra en að benda á hvað ein hugmynd sé lík annarri. Það er ekki ljóst hvers vegna hugmyndirnar líkjast, hvernig samfé- lagsþræðirnir hafa flutt hugmyndir upplýsingar og rómantíkur inn í hugarheima Poppers og Kuhns, né af hveiju hugmyndir annars líkj- ast upplýsingu og hugmyndir hins rómantík en ekki til dæmis öfugt eða eitthvað í bland. Það er með öllu óljóst af þessari greiningu hvern- ig reynsla Poppers og Kuhns af samfélaginu (þ.e. af Vín millistríðsár- anna hjá Popper og Bandaríkjunum eftir stríð hjá Kuhn) mótaði hug- myndir þeirra um vísindi. Auk þess virðist trúarlega greiningin ekki lengur eiga við. Þó að Popper og Kuhn hafi báðir skipað grunnvísind- um á hærri stall en hagnýtum vísindum, þá er það íjarri þeim að gera vísindin heilög. Segja má að Popper og Kuhn hafi heldur stuðlað að afhelgun vísindanna en hitt, hvor á sinn hátt. Popper afhelgaði vís- indin með því að halda fram skeikulleika þeirra og að kenningar sé einungis hægt að afsanna en ekki staðfesta. Kuhn afhelgaði vísindin með því að benda á þátt félagslegra afla í þróun vísinda á kostnað skynsemi og rökhugsunar.17 17 Sú afhelgun vísinda sem fólst í bók Kuhns, Gerð vísindabyltinga (The Struc- ture of Scientific Revolutions), beindist að skortinum á skynsamlegum ástæð- um til að velja á milli viðmiða (e. paradigms) þegar vísindabylting á sér stað. Söguleg rannsókn Kuhns gaf til kynna að það væru ekki góð rök eða sönnun- argögn sem hafa ráðið því að ný viðmið ná fótfestu, heldur ýmsar félagslegar ástæður. Samkvæmt bók Kuhns virtist ekki vera hægt að velja af skynsemi, á milli viðmiða, því skynsemin sjálf getur ekki unnið utan þeirra. Og ekki er til neitt stærra viðmið sem hægt er að nota til að dæma um gildi einstakra viðmiða. Eftir útkomu bókarinnar dró Kuhn úr afstæðishyggjunni sem í þessu fólst og gagnrýndi mjög þá afhelgun á vísindum sem bókin var upphaf- ið að (sjá t.d. Thomas S. Kuhn: „Hvað hefur gerst eftir Gerð vísindabyltinga?“ Heimspeki á tuttugustu öld: Safn merkra ritgerða úr heimspeki aldarinnar. Ritstjórar Einar Logi Vignisson og Ólafur Páll Jónsson (Reykjavík: Heim- skringla/Mál og menning 1994), bls. 225-240, sjá bls. 228. í upphaflegri út- gáfu heitir greinin „The Road Since Structure" í Arthur Fine o.fl. (ritstj.): PSA 1990: Proceedings of the 1990 Biennial Meeting of the Philosophy of 40
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.