Hugur - 01.06.2002, Qupperneq 51
Refir og broddgeltir, dýrlingur og snákur
Hugur
einhver annar til að fara höndum um það sem maður hennar kallaði
„morðskúffuna“ hennar og gera bók úr því sem þar er að finna.
§2 Tveir heimar
Við íyrstu sýn eru Quine og Anscombe mjög ólíkir heimspekingar. Til
dæmis var Quine að hálfu leyti hreinn rökfræðingur, höfundur margra
snjallra hugmynda á því sviði og rómaðra kennslubóka.7 Anscombe lét
eiginlega rökfræði vera að mestu. Hún fékkst á hinn bóginn mjög við
siðfræði, til dæmis við siðalögmál og lagareglur um morð og dráp eins
og fram er komið, eða þá við rétt stríðs og friðar8 og jafnvel við getnað-
arvarnir.9 Hún olli raunar tímamótum í siðfræði upp úr miðri öldinni
sem leið með ritgerðinni „Siðfræði nútímans“.10 Quine skeytti næstum
ekkert um siðfræði né skyld efni.111 ljósi þessa kynnu rit þeirra - rök-
fræðings og siðfræðings - að virðast vera tveir heimar.
Rökfræði Quines uppljómar alla aðra heimspeki hans, og þessi
heimspeki myndar fyrir vikið óvenjulega samstæða heild þar sem eitt
tengist öðru á ótal vegu. Og allt gengur upp, eða virðist að minnsta
kosti gera það. Þessi glæsilega bygging má heita til þess gerð að leysa
mikla gamalkunna gátu: „Hvernig getum við treyst því að heims-
mynd okkar, og þar með talin heimsmynd vísindanna, birti okkur
eitthvert brot af veruleikanum eins og hann er? Hver er þáttur okk-
ar og hver þáttur náttúrunnar í heimsmyndinni?“ Þegar Quine íjall-
ar um hluti og staði þeirra í kenningum, eins og hann gerði í Lögbergi
8da júní 1980, er hann að fást við einn anga af þessum vanda. Þegar
hann Qallar um merkingu og sannleika er hann að íjalla um annan
anga vandans.12 Þegar hann hafnar „tveim kreddum raunhyggjunn-
ar“ er hann að fást við hinn þriðja.13 Alls staðar kemur rökfræðin við
7 Rómuðust er Methods of Logic sem kom fyrst út 1950 og oft síðan í endur-
skoðuðum útgáfum. Upphaflegi útgefandinn var Holt, Rinehart og Winston,
en íjórða útgáfa 1982 kom út hjá Harvard University Press.
8 G.E.M. Anscombe: „The Justice of the Present War Examined“, „Mr Truman’s
Degree“ og „War and Murder" í Collected Philosophical Papers III: Ethics, Re-
ligion and Politics, Basil Blackwell, Oxford 1981.
9 „You Can have Sex without Children: Christianity and the New Offer" í Coll-
ected Philosophical Papers III: Ethics, Religion and Politics, 82-96.
10 Sjá neðanmálsgrein 1.
11 Sjá þó „Skilningur er eftirsóknarverður í sjálfum sér“, 18-20.
12 Sjá „Merkingu og sannleika" í Hug 2000-2001.
13 Sjá „Tvær kreddur raunhyggjunnar" í Hug 1991.
49