Hugur - 01.06.2002, Page 152

Hugur - 01.06.2002, Page 152
Hugur Robert Nozick alsælu (ef þú kýst hana) og hvers vegna skyldir þú finna til óþæginda yfirhöfuð ef ákvörðun þín er besta ákvörðunin? Hvað skiptir okkur máli umfram reynslu okkar? I fyrsta lagi fýsir okkur að gera eitt og annað, ekki bara hafa reynslu af því að gera það. Þegar um einhverja sérstaka reynslu er að ræða, þá viljum við reynsl- una af þeirri ástæðu einni að okkur fýsir að framkvæma það sem reynslan er reynsla af eða halda að við höfum framkvæmt það. (En hversvegna viljum við athafna okkur frekar en bara fá reynslu af at- höfnunum?) Önnur ástæða fyrir því að tengjast ekki er sú að viljum vera með sérstökum hætti, vera sérstök tegund af manneskju. Sá sem flýtur í keri er óákvörðuð klessa. Það er ekkert svar til við þeirri spurningu hvers konar manneskja sá sé sem lengi hefur legið í ker- inu. Er hún hugrökk, væn, greind, hnyttin, ástrík? Það er ekki aðeins erfitt að segja; hún er ekki á einn veg frekar en annan. Að tengjast vélinni er nokkurskonar sjálfsmorð. Sumum, sem eru fastir í þeirri mynd, kann að virðast að ekkert skipti máli nema að svo miklu leyti sem það endurspeglast í reynslu okkar. En er eitthvað sem kemur á óvart við að okkur finnist mikilvægt hvað við erum? Hvers vegna skyldum við aðeins hugsa út í það hvernig tíma okkar er varið, en ekki út í hitt hvað við erum? í þriðja lagi þá takmarkar reynsluvélin okkur við veruleika sem gerður er af mannahöndum, veruleika sem er hvorki dýpri eða merki- legri en hvaðeina það sem fólk getur búið til. Það er ekki um nein raunveruleg tengsl við dýpri veruleika að ræða, þótt hægt sé að herma eftir reynslunni af honum. Margir vilja vera opnir fyrir slíku sambandi og fyrir tengingum sem hafa dýpri merkingu.1 Þetta skýrir hinn ákafa ágreining um skynörvandi lyf sem fyrir sumum jafngilda nokkurskonar reynsluvélum en opna í augum annarra leiðir að dýpri veruleika; það sem sumir telja fela í sér uppgjöf gagnvart reynsluvél telja aðrir eina af ástæðum þess að maður skyldi ekki gefast slíkri vél á vald! 1 Heföbundin trúarleg viðhorf til þess hverskyns sambandið sé við handan- veruleika eru innbyrðis ólík. Sumir segja að slíkt samband veiti eilífa alsælu í Nirvana, en þeir geta ekki gert nægilega skýran greinarmun á þessu og því að vera mjög lengi í reynsluvélinni. Öðrum kann að finnast það eftirsóknar- vert í sjálfu sér að breyta að vilja æðri veru sem skapaði okkur öll, þó að þetta gæti væntanlega engum fundist ef í ljós kæmi að við hefðum verið sköpuð í því skyni að vera ofurmáttugu barni úr öðru stjörnukerfi, eða annarri vídd, til skemmtunar. Enn aðrir ímynda sér samruna við æðri veruleika í fyllingu tímans, án þess að ljóst sé hve æskilegur hann er eða hvað verði um okkur eftir samrunann. 150
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.