Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 7
Hlín 5
eftir því, að gjaldeyrir verði veittur í samræmi við þær
niðurstöður, er skýrslurnar sýna.
8. Landsþing Kvenfjelagasambands íslands lýsir
ánægju sinni yfir því, að konur liafa nú um skeið átt
sæti í nefnd þeirri, er ríkisstjórnin skipaði til þess að
gera tillögur um endurbætur á skömtunarkerfinu, og
þakkar nefndarkonum starf þeirra í þágu innflutnings-
og skömmtunarmálanna.
Jafnframt leyfir þingið sjer að gera eindregna kröfu tii
þess, fyrir hönd íslenskra liúsfreyja, að konur fái fulia
hlutdeild í öllum þeim nefndum og ráðum, er starfa að
innflutnings-, skömtunar- og verðlagsmálum þjóðarinnar,
þar eð konur hafa nánari kynni en karlar af þörfum
heimilanna og framleiðsluverði ýmiskonar varnings, sem
einkum er til heimilisnota.
Jafnframt leyfir þingið sjer að minna á, að nauðsyn
krefur, að árlega sjeu veitt gjaldeyris- og innflutnings-
leyfi fyrir öllu því, er við kemur íslenska þjóðbúningn-
um, peysufötum og upphlut, og sje tekið tillit til þess
við úthlutun slíkra leyfa, að utan Reykjavíkur eru hlut-
fallslega fleiri konur, sem nota þjóðbúninginn heldur en
í Reykjavík.
8. Landsþing K. í. telur mjög mikilsvert, ef takast
mætti að finna úrræði til þess, að koma á skipulagðri
starfsemi hæfra kvenna til þess að taka að sjer heimilis-
gæslu í forföllum húsmæðra. — Hinsvegar krefur slíkt
mikils undirbúnings og athugana, og samþykkir þingið
því að kjósa þriggja kvenna milliþinganefnd, er vinni að
málinu á þann hátt, er hún telur best henta, enda beri
hún athuganir sínar og tillögur jafnan undir stjórn K. í.
og leiti aðstoðar hennar, þegar þurfa þykir. Nefndin skili
störfum á næsta Landsþingi.
í samræmi við ályktun stjórnar K. f. frá 24. sept. 1948
samþykkir þingið, að fjelög megi vera sjálfráð um fyrir-
komulag verklegra námsskeiða. — Til þess að fá jöfnuð
á styrki K. I. til námsskeiðanna, leggur þingið til, að