Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 109
Hlín
107
víða saman. — Nú er tekið bensín á Laugum, síðan haldið
til Fljótsheiðar, en þá skellur yfir okkur kafþykk þoka,
óvinur smala og ferðalanga, sem byrgir fyrir alla útsýn,
og regnið dynur á bílþakinu, og var nú heldur farið að
kvíða fyrir að koma í sjálfan höfuðstað Norðurlands
svona seint að kveldi, öllum að óvörum. Klukkan 11 er-
um við á Fosshól, neðsta bæ í Bárðardal, getum þó náð
í síma og látið vita af okkur á Akureyri. — Við heyrum
niðinn í Goðafossi, en sjáum hann ekki. Síðan er ekið
inní I.jósavatnsskarð, meðfram hinu stóra Ljósavatni,
inn í Fnjóskadal ,framlrjá Vaglaskógi, og upp til Vaðla-
heiðar. Er Fnjóská bláhvítt bergvatn með ótal reglu-
bundnum bugðum og sljettum eyraroddum. Þegar kom-
ið er upp á brún Vaðlaheiðar sjest Akureyri óljóst gegn-
um þoku- og rigningarmökkinn, en þarna er eitt hið feg-
ursta útsýni á Norðurlandi í björtu veðri, en svona mæt-
ir okkur nú sá mikli höfuðstaður. — En því hlýlegri er
viðmót fólksins, sem tók okkur tveim höndunr, og megum
við sjerstaklega þakka Gunnari Jónssyni frá Hafursá,
hans fólki og öðrum góðum Austfirðingum, þær móttök-
ur, einnig veitingahúsi Kaupfjelags Eyfirðinga, sem bauð
okkur öllum uppá ágætis veitingar þá um kvöldið, þó við
kæmum eftir allan venjulegan lokunartíma.
Þriðjudagurinn 25. júní. Höfum sofið vel eftir langa
og erfiða ferð, horfum til veðurs, því rniður þoka og
rigning, það hefur snjóað í fjöll. — Ákveðið hafði verið,
að hópurinn kæmi saman í skrúðgarði bæjarins kl. 1,
en af því veðrið var svo vont komu ekki nema fáar. Síðan
var garðurinn skoðaður og hittum við þar Þuru frá
Garði, eftirlitskonu hins fagra garðs, sýndi hún okkur
alla gestrisni, fór með okkur í Matthíasarkirkju, sem er
ein mesta prýði bæjarins. — Um kvöldið birti upp, er þá
farið inn í Eyjafjörð, að Grund, komið við í Reykhús-
um og Kristnesi. — Um kvöldið áttum við skemtilegar
stundir hjá vinum og frændum víðsvegar um bæinn.