Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 82
80
Hlín
horft björtum augum á framtíð íslenska heimilisiðnaðar-
ins: Almenningur er honum vinveittur, hann nýtur
virðingar hjá valdhöfum þjóðarinnar og hann getur orð-
ið þjóðinni drjúgur tekjuauki. — Við óskum og vonum,
að margt gott og duglegt fólk fylki sjer undir merki
heimilisiðnaðarins á komandi árum.
Það er okkur mikið gleðiefni, að þetta 6. Heimilis-
iðnaðarþing komst á hjer á landi, svo að við getum boðið
frændfólk okkar velkomið hingað með sýningar og mik-
inn fróðleik. — Við höfum margt af ykkur að læra, ekki
hvað síst, hve mikla virðingu og heiður þið sýnið ykkar
þjóðlega heimaiðnaði. — Það þurfum við líka að læra.
Það er unnið fádæma mikið af allskonar handavinnu í
þessu landi, það sýnir sig best á sýningunum, sem haldn-
ar eru víðsvegar um landið árlega. En það mætti vera
meiri þjóðlegur blær á sýningum þessum.
Já, það er ósk mín og von ,að þetta málefni okkar,
heimilisiðnaðurinn, eigi mörg góð og björt ár fyrir hönd-
um. — Jeg trúi á framtíð þessa málefnis eins og allra ann-
ara góðra málefna. Þau sigra að lokum.
Sumarið 1948
Halldóra Bjarnadóttir.
HEIT
Jeg vil lifa langa ævi, —
líf sem náðargjöf jeg þáði —
dýrka, trú í dagsins verki,
Drottin minn, og honum vinna,
aðra gleðja, góðs þeim biðja,
gefa bros af hlýjum sefa,
hefja blys, er húmin lýsi,
hugga þá, er lifa í skugga.
Erla.