Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 59
Hlín
57
króki, Guðrún Pjetursdóttir, Sauðárkróki, Ingunn Blön-
dal, Sauðárkróki, Ólína Magnúsdóttir, Sauðárkróki, Lín-
ey Sigurjónsdóttir, Sauðárkróki, og Kristín Björnsdóttir,
Sauðárkróki.
Þá var kosin stjórn fjelagsins. Hana skipuðu:
Margrjet Guðmundsdóttir, formaður.
Ólöf Hallgrímsdóttir, gjaldkeri.
Líney Sigurjónsdóttir, ritari.
í varastjórn voru kosnar:
Sigurlaug Gunnarsdóttir í Ási.
Guðbjörg Stefánsdóttir á Sauðárkróki.
Ingunn Blöndal á Sauðárkróki.
Aðal markmið fjelagsins var, og hefur síðan verið:
Að styðja að rjettindum og menningarmálum kvenna,
svo og öllu }rví, sem horfir til heilla landi okkar og þjóð-
fjelagi. Einnig eftir bestu getu að rjetta hjálparhönd fá-
tækum og sjúkum. Fjelagið hefur líka viljað leggja ein-
hvern skerf til helstu framfara þessa staðar.
Eins og að líkum lætur voru ekki haldnir nema 2—3
fundir á ári fyrstu árin, á meðan konurnar úr sveitinni
voru meðlimir fjelagsins. Þá var örðugra um samgöngur
en nú, og hlýtur að hafa verið mikið á sig lagt að sækja
fundina utan úr Laxárdal og handan úr Hjaltadal og
Hofsósi, svo nokkrir staðir sjeu nefndir.
Fyrsta opinbera skemtunin, sem fjelagið lijelt, var
haldin um sýslufund í febrúar 1896. Til gamans má geta
jress, að inngangseyrir á skemtun þessa var 20 aurar fyrir
fullorðna og 10 aurar fyrir börn. Ágóðinn af þeirri
skemtun og tombólu, sem fjelagið hjelt skömmu síðar,
var gefinn til lúðrafjelags, sem um þessar mundir var
stofnað hjer á staðnum. — Eftir fundargerðum frá þess-
um fyrstu árum að dæma má sjá, að mikill áhugi hefur
verið ríkjandi í fjelaginu fyrir eflingu bindindis, sjer-