Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 101
Hlín
99
Ferðasaga.
Það er í sjálfu sjer mjög hversdagslegur viðburður nú
á þessum orlofs- og ferðatímum að fara í 5 daga skemti-
ferðalag, en það var nú samt einstæður atburður, að 22
konur úr Skriðdal skyldu hefja undirbúning að slíkri
ferð. — Fyrir sjerstakan áhuga, dugnað og fórnfýsi var
þessi ferð farin, hver hjálpaði öðrum, bæði innan lteimila
og utan. Bæði var undirbúningstíminn stuttur og frá
sumum heimilum var konan, senr fara átti, eina fullorðna
konan á heimilinu, svo mikið varð að undirbúa, svo
bændur stæðu ekki alveg ráðalausir uppi í lieila 5 daga,
því öðru eins höfðu þeir aldrei orðið fyrir áður.
Kvenfjelagið liafði fengið leigðan bíl hjá Kaupfjelagi
Hjeraðsbúa með mjög vægurn kjörum. — Seint var farið
að sofa laugardaginn 22. júní, því kl. 8 á sunnudags-
morgun skyldi lagt af stað. — Ferðinni var heitið til Ak-
ureyrar, og var fyrsti áfanginn ákveðinn í Lindarbrekku
með viðkomu í Ásbyrgi, því þann dag hjeldu Norður-
Þingeyingar hjeraðsmót sitt, og var konum mjög í mun
að komast þangað í tæka tíð. — Gengið var frá kössum
og töskum. matvælum og nauðsynlegum áhöldum, því
þar sem konur voru einar í ferð, kunnu þær best við að
hafa sem mest af sínum eigin útbúnaði.
Sunnudagurinn 23. júní rann upp með hlýjum þey
í lofti og dögg á jörð, en þokuband lá yfir ánni og lág-
lendinu, himinhvolf og tindar þokulaust: Það var eins
og þokuslæðu væri brugðið yfir framtíðina.
Klukkan 8 fer sveitasíminn að hringja, svo auðlievrt
er, að fólkið er vaknað á bæjunum, en það sem nú varð
að áhyggjuefni var, að ökuþórinn okkar góði, Jón Þór-
ólfs, sem átti að vera til staðins kl. 8, var ókominn. Svo
liðu 2 langir klukkutímar þar til hann kom, og þá með
bilaðan bíl> og með því höfðum við tapað 4 klukku-
7*