Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 55
Hlín
53
Hið skagfirska kvenfjelag fimmtíu ára.
Laugardaginn 26. janúar 1946 hjelt „Hið skagfirska
kvenijelag“ á Sauðárkróki hátíðlegt 50 ára afmæli sitt. —
Hóí'ið fór fram í samkomuhúsinu „Bifröst", og veislu-
gestir voru 145. — Forstöðukona fjelagsins, Jórunn
Hannesdóttir, bauð gestina velkomna. Setti hún Pjetur
Hannesson til að stjórna samsætinu. — Undir borðum
flutti forstöðukonan ræðu og lýsti stofnun fjelagsins og
störfum frá því fyrsta. Ennfremur hjeldu eftirtaldir menn
ræður: Síra Helgi Konráðsson, Valgarð Blöndal, póst-
meistari, P'riðrik Hansen, kennari, Jón Sigurðsson, al-
þingismaður, Reynisstað, Sigurður Sigurðsson, sýslumað-
ur, Jón Konráðsson, hreppstjóri í Bæ, Pjetur Hannesson,
sparisjóðsformaður, og Eysteinn Bjarnason, kaupmaður.
Á milli ræðanna var sungið.
Þá var lesið kvæði til fjelagsins fi'á frú Maríu Rögn-
valdsdóttur frá Rjettarholti:
í dag er Gleðin heiðursgestur hjer
og horfir yfir þennan bjarta sal.
Og Gleðin sína gullnu vængi ber,
sem geta flogið hvert sem vera skal.
Hún getur bæði setið svona kyr
og sviiið eins og hnoðri frá og til,
hún getur opnað hvers manns hjarta og dyr,
og hún kann dýrra æfintýra skil.
í hálfa öld hún hefur verið með
og heillamerkja þessa fjelags gætt.
Nú er hún, eins og allir geta sjeð,
í öllu sínu besta skarti mætt.
Hún snertir ljettum fingri fögur blóm,
og fær sjer dropa, til að hressa sál.