Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 128
126
Hlín
ið inn í upplestri og stundum tekið lagið. — Ef veðrið var
gott, var aðsókn jafnan góð, og menn virtu til betri vegar,
þótt lnispláss og skemtiatriði væru ekki í fullkomnu lagi.
Fjelagið sá samt fljótt, að þetta húspláss var ekki til
frambúðar, og því var það árið 1929 að ráðist var í að
byggja þetta samkomuhús, sem við sitjum í. — Tók fjel-
agið lán til þess hjá Kvenfjelagi Vopnafjarðar að nokkr-
um hluta. —• Efni og smíðavinna til hússins kostaði þá
um 2000 kr. En flutningskostnað og ýmislegt annað til-
heyrandi byggingunni lögðu fjelagskonur franr ókeypis.
Hús þetta var af litlunr efnum bygt, enda vantar enn
mikið á að það fullnægi þeim kröfum, sem við viljum
gjöra til þess. Hjer vantar hentugt sæti, hjer vantar bætta
aðstöðu fyrir erindaflutning, upplestur og söng, og svona
mætti fleira telja. En kvenfjelagið hefur skrifað það bak
við eyrað að gjöra á þessu endurbætur, þegar efni og á-
stæður leyfa, og hefur fjelagið lagt til hliðar afgang af
árstekjum sínum í því augnamiði síðustu árin, og eru
inneignir fjelagsins um síðustu áramót 4750 kr. — En
það þýðir ekki að nefna smáar upphæðir til endurbóta á
húsum eða til bygginga á þessum tímum. — En hús þetta .
hefur fjelagið notað fyrir samkonrur sínar, síðan það
var bygt, en þó notið góðs nágiænnis við heinrilið á Hofi
um leið, og finst mjer fara vel á því ,en þó hefur fjelagið
enga tryggingu fyrir því að svo verði æfinlega.
Nú seinni árin hefir Hofsdeildin oftast haft einhverja
starfsemi með höndum, en fólksfæð og ýmsar annir í
sveitinni liafa dregið úr störfum. — Eitt árið var komið
á saumanámskeiði á Vopnafirði og var kennslukona hjá
fjelaginu okkar ágæta saumakona Sesselja Stefánsdóttir
á Guðmundarstöðum, en nemendur nokkrar ungar
stúlkur úr sveitinni. — Öðru sinni var efnt til vefnaðar-
námskeiðs hjer á Hofi og fjekk fjelagið ágæta kenslu-
konu frá Sambandi austfirskra kvenna. — Var þetta hvort-
•tveggja vel þakkað starf. — Þá hefur fjelagið síðustu árin
tekið sjer fyrir liendur að gróðursetja trjágirðingu utan