Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 97
Hlín
95
átt fallegt greni, ef eg hefði fengið mína fyrstu pöntun
fyrir 19 árum. — Kálbeðin reyndust altof lítil, svo að jeg
varð að fá opnaðan nýjan reit, en það drógst nokkuð að
hann yrði til. Eftir mánaðartíma var jeg þó búin að planta
trjáplöntunum öllum út með eigin hendi í hjáverkum.
I>ær reyndust 2250. — Þeim hefur liðið vel síðan, farið
vel fram. Jeg seldi töluvert af plöntum í fyrravor og
nokkuð í vor. Sjálf þarf jeg mikið af plöntum, því nú
er jeg búin að fá þarna stóran garð, en hætt í bili að liugsa
um girði.ngu utan garðs. — Það atvikaðist þannig, að þeg-
ar bygt var hjer upp fyrir 2—3 árum síðan, var bærinn
færður á hagkvænrari stað, þarnreð fjekk jeg nóg og hent-
ugt landrými fyrir stóran garð, og er nú að mestu búin
að girða liann, og er hann 2290 fermetrar. — Það fanst nú
flestum þetta tóm heimska af mjer að láta girða svona
stórt, en eg ljet mig hvergi, var svo margbúin að reka
mig á þrengslin, þegar maður er farin að fást við trjá-'
plöntun. Nú þarf jeg lreldur ekki að kvíða þeinr. — í
vor sem leið byrjaði jeg að setja niður í þennan garð nýja
birkið mitt og flutti sumt af trjánunr úr gömlu görðun-
um og virtist það lánast vel. Sumt flutti jeg í lraust, aðal-
lega greni, en barrfelli ætla jeg að flytja í vor, vona að
þau lifi, tími ekki að skilja þau eftir upp frá, þó skóg-
fræðingar hafi ráðið mjer til þess, en fáein trje skil jeg
samt eftir.
Jeg á voðamikið verk fyrir liendi í garðinum í vor og
svo auðvitað framvegis. Verst hve illa gengur að fá menn
þegar á liggur. — Nágrannar mínir gáfu mjer samt marg-
ir dagsverk í garðinum í fyrravor, og er jeg þeirn mjög
þakklát fyrir. — Jeg hef leitast við að borga sumt af þeim
með vinnu minni eða plöntum, þeim sem það hafa vilj-
að. — í vor sem leið var jeg við að setja niður í tvo garða,
setti upp dagsverk á móti. Mennirinir voru báðir smiðir,
svo girðingin komst upp á dag með aðstoð allra heima-
manna. — Jeg hef áreiðanlega hvorki fyr nje síðar unnið