Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 93
Hlín
91
Garðurinn minn.
Frásögn Oddnýjar Metliúsalemsdóttur,
Ytri-Hlið i Vopnafirði.
0
,Faðir og vinur alls sem er,
annastu þennan grœna reit,
blessaöu, Drottinn, blómin hjer,
blessaðu þau í hverri sveit
J. H.
Það er nú víst orðið næstum því ár síðan þú skrifaðir
mjer, Halldóra mín, og baðst mig að segja þjer eitthvað
frá skógræktarstarfi mínu hjer í Vopnafirði, en jeg hef
ekki hingað til fengið mig til þess. Mjer finst jeg ekki
geta sagt frá þessu nema segja alveg sögu garðanna minna-
en jeg er hrædd um að þú hafir lítið gaman af því.
Þegar jeg var unglingur, hafði jeg altaf mjög gaman
að blómum, sáði stundum sumarblómum í potta inni og
hafði mikla ánægju af þeim. — Veturinn 1912-13 var jeg
í Reykjavík í Hússtjórnarskóla, þá hafði Einar Helgason
garðyrkjufræðingur, garðyrkjutíma með okkur einu sinni
í viku, hafði jeg bæði gagn og gaman af þeim. Jeg minnist
Einars ætíð síðan með þakklæti og hlýjum hug, ekki síst
nú í seinni tíð, þegar jeg er að lesa í „Björkum."
Mig fór nú að langa mikið til að búa mjer til blóma-
garð á lieimili mínu, Burstarfelli. Jeg var nokkrar vikur
hjá frænku minni á Húsavík, þegar jeg fór liehn, og gaf
hún mjer nokkrar rætur af rangfangi. mjaðjurt o. fl. —
Þegar heim kom í Burstarfell, girtu bræður mínir svo-
lítinn blett fyrir mig með neti framan við bæinn, svo jeg
gæti komið fyrir blómunum mínum. Þanneð var þá
myndaður blómagarður, áreiðanlega sá langfyrsti hjer
um slóðir. — Þó garðurinn væri ekki stór, og ekki mikið
í honum til að byrja með, þá hafði jeg ósegjanlega á-
nægju af lionum, og rnargir höfðu líka gaman af að líta á