Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 142
140
Hlín
KVENFJELAGIi) .,HEKLA“ í AUSTUR-
HÚNAVATNSSÝSLU 20 ÁRA
Fjelagið var stol'nað 28. ágúst 1927 á Kálíshamarsvík.
Stofnendur voru 16. Forstöðukona var kosin Anna Tóm-
asdóttir í Víkum á Skaga og hefur hún haft formanns-
stöðuna á ltendi síðan af miklum dugnaði. Gjaldkeri var
kosinn Guðbjörg Kristmundsdóttir, Tjörn, og hefur hún
altaf verið gjaldkeri fjelagsins síðan. Ritari var kjörirm
Guðrún Stefánsdóttir, Höfnum. — Ritaraskifti hafa oft
orðið innan fjelagsins. Nú gegnir því starfi Svafa Sig-
mundsdóttir, Björgum.
Aðalstarf fjelagsins fyrstu árin var að gleðja fátæk
heimili á fjelagssvæðinu l'yrir jólin. Þá var mikil fátækt
víða- og var þá gefinn fatnaður á börn, og einnig var
gef'inn sængurfatnaður til sængurkvenna. Oft voru líka
gefnar nokkrar peningagjafir til sjúkra og bágstaddra.
Þá tók íjelagið upp þann sið að hafa námskeið fyrir
litlar stúlkur frá 8—14 ára, og liafa þau verið haldin ná-
lega á hverjum vetri síðan og staðið eina viku í senn.
Þessi starfsemi liefur verið mjög vinsæl og borið góðan
árangur. Einnig hefur fjelagið oftast nær gengist fyrir
jólatrjesskemtun fyrir börn og gamalt fólk og hefur þá
jafnan verið glatt á hjalla.
Þegar þetta fjelag var stofnað, var mjög slæmur vegur
á fjelagssvæðinu, og það svo mjög, að varla var fært hest-
fætinum. Þá var verið að ryðja veg um þetta pláss okkar,
og gerðumst við þá sjálíboðaliðar og unnum að því að
ryðja veginn, og munu allar kvenfjelagskonur hafa látið
eitt dagsverk í þetta í 3 vor. Fyrir þetta tiltæki vorum
við settar í ,,Spegilinn“ með skóflur og hverskonar áhöld,
og má nærri geta, hvort okkur hefur ekki þótt heiður að
slíku.
Tekjum helur fjelagið aflað’ sjer með ýmsu móti. Á