Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 166
Hlín
164
Til allra mannkosta eflingin góð
fylgi þjer í dauðanum fyrir Jesú blóð.
Fylgi þjer í dauðanum frelsarinn þinn,
flytji hann þig fagnandi í fjárhópinn sinn.
Fiytji hann þig fagnandi í friðarins rann,
bfessi þig betur en biðja jeg kann.
Blessi þig betur, barnfuglinn minn,
til aðgæsln sendi Jrjer engilinn sinn.
Aðgæsla Drottins umfaðmi þig greið,
veiti hann J)jer værðina og verndi J)ig frá neyð.
Veiti hann þjer værðina og veki J)ig með ró,
andlega speki með aldrinum J)ó.
Andlega speki þú öðlist og frið,
farsældar óskin mín festist J)ig við.
Farsældar óskum falin sjertu nú,
undir sigurmerki Drottins sofna J)ú.
Sigurmerki Drottins svæfi J)ig vært,
iðkaðu mín heilræði, elsku barnið kært!
Iðkið þið mín heilræði, eldri menn og fljóð,
J)yljið yfir Þórði þessi vögguljóð.
Þyljið yfir barninu, þá J)að sofna skal.
hjálpi oss Guð og hýsi í himnadýrðar sal.
Gamalt btcnvers úr Breiðafirði.
Ingibjörg Hannesdóttir, Hörðubóli, skrifar: Efni brjefsins var
nú að biðja þig að gera svo vel að koma litlu versi í „Hlín“ fyrir
mig til geymslu. Jeg held mikið upp á J)að. Faðir ininn, sem dáinn
er fyrir 17 árum, kendi mjer J)að, þegar jeg var á })riðja ári. Móðir
hans kendi honum það, þegar hann var ungur, en hana misti hann
sex ára, svo að á þessu sjerðu, að J)að er gamalt. En jeg sje, að J)að
eru mörg vers, sem móðir mín kendi ntjer, þegar jeg var ung, ein-
mitt í „Hlín“.
Sofi augun mín, vaki hjartað mitt,
horfi það til Guðs.
Signdu mig sofandi, varðveittu mig vakandi,
láttu mig í friði sofna
og í eilífu ljósi aftur vakna,
svo Guði mínum vel þóknist
þessa nótt og alla tíma.
í Jesú nafni. Amen.