Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 36
34
Hlírt
in, og orðin hennar mild og sefandi, full af samúð og
skilningi, ást og umburðarlyndi. — Amma mín var mikil
trúkona, hafði miklar mætur á Hallgrímssálmum og
kunni þá alla. Einnig kunni hún mikið af öðrum sálm-
um og bænum, sem hún kendi okkur börnunum. —
Þökk sje þeim, sem gaf okkur þessa ágætu ömmu, sem
lýsti upp æsku okkar með ástúð sinni og mildi. Jeg veit,
að þeir geislar, er frá henni streymdu í sál okkar, lýsa
þar til æfiloka, og heitasta óskin er sú, að liún taki á
móti okkur ástvinum sínum á hinum miklu landamær-
um lífs og dauða.
Það eru þegar margir farnir af vinum og samferða-
fólki yfir djúpið mikla, en við tvær dótturdætur og fóstur-
dóttir, sem enn stöndum á ströndinni hjerna megin hafs-
ins, vonum að sjá þig bráðum ásamt öðrum vinum.
Blessuð sje minning þín, elsku amma mín.
Björg Magnúsdóttir,
Túngarði á Fellsströnd.
Ragnhildur Stefánsdóttir,
Gilsá í Breiðdal, S.-Múlasýslu.
MINNINGARORÐ.
.,Hví skyldi jeg yrkja um önnur fljóð,
en ekkert um þig, ó, móðir góð,
Upp, þú minn hjartans óðurl
Því hvað er ástar- og hróðrardfs,
og hvað er engill úr Paradís,
hjá góðri og göfugri móður?"
Svo kvað Matthías, og undir það mega allir taka, sem
eru þau hamingjunnar börn, að eiga göfugar og góðar
mæður og hafa fengið að njóta handleiðslu þeirra og
samveru um langt skeið æfinnar.
Þar sem jeg er ein í þeirra tölu, vil jeg nú, með