Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 58
56
Hlín
Hjer fylgir með ræða sú, sem formaður fjelagsins, Jór-
unn Hannesdóttir, flutti í afmælishófinu:
Nú, þegar fjelag okkar er fullra 50 ára, vil jeg með
nokkrum orðum rekja sögu þess. Hinn rjetti afmælis-
dagur þess var 25. ágúst 1945, en ýmsra orsaka vegna var
ekki hægt að halda þann dag hátíðlegan. En á aðalfundi
í haust var ákveðið að minnast afmælisins síðasta laugar-
daginn í janúar, og sem betur fór, kom engin hindrun
fyrir, svo við gátum kornið hjer saman í kveld, til að
gleðja okkur með vinum og velunnurum fjelagsins. —
Jeg ætla nú í stórum dráttum að lofa ykkur að heyra sögu
þess og byrja á að segja frá stofnfundi og stofnendum.
Hinn 25. ágúst árið 1895 var kvennafundur haldinn
á Sauðárkróki. Nokkrar konur þorpsins höfðu komið
sjer saman um að stofna fjelagskap meðal skagfirskra
kvenna. Á fundi þessum mættu 15 konur sýslunnar. —
Frú Margrjet Guðmundsdóttir setti fundinn og skýrði
frá tilgangi lians. Hún var síðan kosin fundarstjóri. Hún
lagði fram frumdrög að lögum fyrir hið væntanlega fje-
lag, og eftir nokkrar umræður og breytingar voru þau
samþykt. — Fjelagið hlaut nafnið „Hið skagfirska kven-
fjelag“, þar sem það átti að ná til kvenna, sem heima áttu
víðsvegar í sýslunni. — Auk þeirra 15 kvenna, sem mættar
voru á fundinum, höfðu 5 konur sótt um það skriflega
að mega taka þátt í stofnun fjelagsins. Stofnendur voru:
Sigurlaug Gunnarsdóttir, Ási, Ingibjörg Jónasdóttir, Ríp,
Anna Jónsdóttir, Hellulandi, Guðný Jónsdóttir, Lóni,
Engilráð Jóhannesdóttir, Garði, Guðrún Jónsdóttir, Hól-
um í Hjaltadal, Þórunn Gunnarsdóttir, Skíðastöðum,
Guðrún Jósefsdóttir, Hofsósi, Ástríður Jónsdóttir, Sævar-
landi, Helga Guðjónsdóttir, Sjávarborg, Jóhanna Jóns-
dóttir, Viðvík, Sigurlaug Sigurðardóttir, Hofi, Anna
Claessen, Sauðárkróki, Margrjet Guðmundsdóttir, Sauð-
árkróki, Björg Eiríksdóttir, Sauðárkróki, Guðbjörg Stef-
ánsdóttir, Sauðárkróki, Ólöf Hallgrímsdóttir, Sauðár-