Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 43
41
Hlín
Herdís Guðnadótdr,
Lundi í Fnjóskadal.
MINNINGARORÐ.
Hún var fædd að Skörðum í Reykjahverfi 26. nóvem-
ber árið 1878. Guðni faðir liennar var sonur Gísla, er
kallaður var Stóri-Gísli, en hann og Arngrímur ,,málari“
voru synir Skarða-Gísla, hins þjóðkunna liagyrðings. —
Móðir Guðna var ættuð frá Mýri í Bárðardal. Kona hans,
og móðir Herdísar, lijet Sigríður Jóhannesdóttir og var
einnig af þingeyskum ættum.
Þegar Herdís var sex ára, fluttist hún með loreldrum
sínum frá Sköxðum út á Tjörnes og ólst þar upp og í
Húsavík að nokkru fram yfir tvítugsaldur. Meðal annars
var hún hjá frú Kristjönu rnóður Benedikts Sveinssonar
skjalavarðar, og mun dvölin þar liafa verið henni góður
skóli.
Árið 1900 fór liún inn að Fjósatungu í Fnjóskadal,
til Guðfinnu Gísladóttur, föðursystur sinnar, er þá var
orðin síðari kona Guðmundar Daníelssonar, bónda þar.
Þremur árum seinna fluttist Herdís að Lundi, og þann
26. maí 1904 giftist hún eftirlifandi rnanni sínum, Guðna
Þorsteinssyni, og hófu þau þegar búskap þar, á föður-
leifð lians, og bjuggu þar æ síðan. Þau eignuðust sjö
börn: Þórhall, bónda í Lundi, Arnþór, bónda í Mörk,
sem er nýbýli í Lundslandi, Guðríði, er giftist Jóni Jóns-
syni á Fornastöðum, en dó eftir skamma sambúð með
honum, Margi'jetu, Árnínu og Þórólf, sem öll búa með
föður sínum heima á Lundi, og Björn, sem verið hefur
erlendis við nám undanfarin ár, en er nú við kenslu
og iðnaðarstörf á Akureyri.
Herdís var lengstaf heilsugóð, þangað til átta árum
fyrir andlát sitt, að hún kendi sjúkleika, er leiddi til
þess, að hún varð að rnestu rúmföst, það sem eftir var
æfinnar. Lá hún nærri ár á sjúkrahúsi, en síðan í heima-