Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 105
Hlín
103
Síðan skoðum við Ásbyrgi, þessa „prýði vors prúða lands“
með háu hamraveggjunum, skógarkjarri og tjörn. Sann-
arlega tilvalinn samkomustáður. — Jeg leita að hlóðun-
um, sem við hituðum kaiti við, þegar jeg var hjer síðast
á ferð, en auðvitað eru þær horfnar og fokið í þau spor.
— Nú er lialdið að Lindarbrekku, sem er um 10 km. norð-
ar, þar bíða okkar ágæt rúm og ltlýjar viðtökur.
Mánudagur 24. — Förum seint á fætur, drekkum kaffi
og mjólk eins og hver vill. — Síðan förum við tit að skoða
umhverfið með leiðsögn Indriða bónda. — Það er fall-
egt veður og ágætt sýni yfir Kelduhverfi og Axarfjörð.
— „Himininn heiður og blár ,hafið skínandi bjart.“ —
Nú erum við komin út að sjó, við heyrum gargið í sjó-
fuglunum og þaralyktin fyllir vitin, gott og hreint út-
hafsloft. — Lindarbrekka er nýbýli í Kelduneslandi, fæð-
ingarstað Skúla iógeta. — Fyrir neðan túnið er breiður
árfarvegur, sem nú er þur, en fyrir 40 árum rann þarna
breið kvísl t'xr Jökulsá, en mikla sandfláka lrefur sú mikla
óhemja skilið eftir, enda lieita Sandsbæir lengra norður
með ánni.
í Kelduhverfi er útsýni mikið og fagurt: Hafið enda-
laust í norðri, í austri Axarfjarðarfjöll, og ber mest á
Hafrafelli, Sandfelli og Þverárhyrnu, og lengst í norðri
Grettisbæli. í suðri sjest til Ásbyrgis og háfjalla, vestan
Tjörnesfjallgarður með hinni lágu og einkarfríðu Reykja-
lteiði en yst háa og hömrum girta Tunguheiði.
Nú er haldið af stað og ekið meðfram hverjum bæn-
um af öðrum. Bæirnir standa í hverfum neðst í hraun-
röndinni. — Einn var sá bær, sem við vildum sjerstak-
lega sjá, það var Krossdalur, þar sem Kristján Jónsson
skáld er fæddur. Krossdalur stendur í litlurn hvammi á
hægri hönd þegar ekið er norðureftir, og er einn af liin-
um svonefndu Vatnsbæjum. Þarna eru grösugar seftjarir-
ir, fullar af öndum, sem flugu gargandi upp, þegar bíll-
inn rann framhjá. — Nú kom andinn yfir söngfólkið, er