Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 64
Hlín
62
Árið 1940, þegar safnað var til Finnlands, voru gefnar
100 kr. af fjelaginu, og 200 kr. til Norðurlandasöfnun-
arinnar í fyrra.
Þegar hlutafjelagið „Bifröst" var stofnað, gerðist fjel-
agið hluthafi þess ásamt þrem öðrum fjelögum hjer á
staðnum.
9. apríl 1943 var stofnað samband allra kvenfjelaga
sýslunnar og var fjelag vort eitt af stofnendunum. Allar
konurnar, sem eru í stjórn Sambands Skagfirskra kvenna,
eru úr okkar fjelagi. — 22. febrúar 1944 stofnaði fjelagið
sjóð, sem það nefndi Fdliheimilissjóð. Stofnfje var 500
kr. Akveðið var að leggja í hann árlega nokkur hundruð
krónur og afhenda hann svo Elliheimili sýslunnar, þegar
það verður reist.
Eitt af því, sem fjelagið gerði um langt skeið, var að
koma upp fötum fyrir jólin árlega og gefa fátækustu börn-
um staðarins. —» Fjelagskonur skiftu með sjer að gefa fá-
tækum sængurkonum að borða, frá því árið 1903 til árs-
ins 1939. — Um nokkurt skeið voru líka sjúklingum á
sjúkrahúsinu gefnar jólagjafir.
Á Jressu hálfrar aldar tímabili, sem fjelagið hefur starf-
að, hefur Jtað gefið fátækum og sjúkum 12.250 kr., auk
J^ess sem veitt hefur verið úr Ekknasjóðnum og Minning-
arsjóði frú Önnu Claessen. — Alls hefur verið unnið inn
með skemmtunum og fleira 23.669.60 kr., en auk þess
eru þær upphæðir, sem aflað hefur verið handa sjóðun-
um. Þetta eru nú ekki háar tölur, nú á Jiessum tímum
hárra upphæða. En gæta skal Jiess, hvað verðlag krónunn-
ar hefir breyst, og að Jietta leit öðruvísi út fyrir nokkr-
um árum.
Ein er sú stofnun hjer á staðnum, sem fjelagið hefir
altaf langað til að sýna ræktarsemi. Og Jiað er kirkjan
okkar. — Árið 1903 var haldin tombóla til ágóða fyrir
kirkjuna. Árið 1936 gaf fjelagið kirkjunni altarisdúk og
árið eftir var henni gefin dregill á gólfið.