Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 78
'76
Hlín
haldnar, bæði í skólunum og að námskeiðum enduðum,
menta og þroska smekk almennings.
Heimilisiðnaðarfjelög eru 7 í landinu, þau hafa staðið
fyrir fjölda mörgum sýningum og námskeiðum og unnið
þar með hið þarfasta verk. Þau liafa einnig framleitt mik-
ið af söluvarningi- sjerstaklega grófum leistum, sem mikið
er spurt eftir, sokkum, vinnuvetlingum og nærfatnaði.
Á fjárlögum er að vísu ekki há upphæð ætluð til heim-
ilisiðnaðar, en óbeint fær hann mikinn stuðning gegn-
um skólana. Fjöldi ungra námsstúlkna njóta, og hafa
notið, styrks til ýmislegs heimilisiðnaðarnáms erlendis.
Landssýningar í heimilisiðnaði hafa verið styrktar ríflega
af ríkisfje. Verkfærakaupasjóður, svonefndur, var stofnað-
ur af Alþingi fyrir 15-20 árum sem einn hluti af Búnaðar-
fjelagi íslands. Úr þeint sjóði er veitt, gegnum Búnaðar-
fjelög sveitanna, að einum þriðja styrkur til kaupa á vef-
stólum, prjónavjelum og spunavjelum. — Þessi styrkur
hefur komið mörgum, bæði einstaklingum og fjelögum,
að góðu gagni.
Þá er sú stofnun, sem styður og styrkir heimilisiðnað-
inn í landinu og eykur kunnáttu, Jrað er kenslukonuskól-
inn í vefnaði, sem er rekinn sem lítil deild við einn hús-
mæðraskóla landsins (Hallormsstað). — Þessi fræðsla, 2
ára nám, kemur í veg fyrir að kennaraefni þurfi að fara
utan til að leita sjer kennaranáms í vefnaði og um leið
verður lærdómurinn Jrjóðlegri. — Nemendur njóta einn-
ig nokkurrar fræðslu í meðferð ullar og jurtalitun. — Þá
er nú í byrjun kenslukonuskóli í saumum, (Handíðaskól-
inn), tveggja ára nám fyrir kennara í Húsmæðraskólum
og Gagnfræðaskólum og eins árs nám fyrir barnakennara.
— Það hefur verið mikil vöntun á þessari fræðslu hing-
að til, svo kennaraefni liafa verið neydd til að leita sjer
mentunar erlendis. Það er gleðilegt að Jressi mentun fæst
nú í landinu sjálfu eins og kennaramentun í matreiðslu,
hjúkrun og garðyrkju. — Handíðaskólinn veitir einnig