Morgunn - 01.06.1937, Síða 50
44
MORGUNN
altaf að biðja hann að gefa oss það og það. Áhrif bænar-
innar eru þau, að hreinsa oss, svo að vér getum séð.
I sambandi við fjarlægðar-lækningaflokkana eru hóp-
ar af hjálpendum frá öðrum heimi; þeirra verk er að veita
þjáðu mannkyni þjónustu sína. Aðalhliðina á þessari lækn-
ingastarfsemi getum vér ekki séð. Vér erum að mestu leyti
verkfæri, þó að vér séum fræddir samstarfsmenn hinna
ósýnilegu lækningamanna. Sjálfir getum vér lítið.
í þessari þjónustu girðir eigingirni fyrir það, að hinn
andlegi máttur starfi. Menn mega alls ekkert hugsa um
sjálfa sig. Menn verða að vera þess albúnir, að veita þjón-
ustu sína, án þess að hugsa neitt um endurgjald eða nokk-
urn ávinning.
Hugarfarið verður að vera það sama sem hugarfar
Jesú, þegar hann þó fætur lærisveina sinna. Menn verða
að vera auðmjúkir og þakklátir fyrir að geta gert gagn.
Vér erum mitt í andlegum alheimi. Sannleikurinn er
sá, að vér erum partur af honum. Hann er í eðli sínu full-
kominn, en vér höfum ekki enn komist svo langt í and-
legum þroska, að vér getum séð þá fullkomnun.
Þó að vér séum umkringdir af þessum andlegu öfl-
um, þó að vér séum samtengdir andlegum verum, getum
vér alls ekkert af þeim séð. Fáeinir menn verða þeirra
varir, en meirihluti manna verður það ekki. Hópur manna,
sem saman eru komnir til f jarlægðar-lækninga, er miðdep-
ill, sem sameinar lækninga-geislana. Með þessum hóp er
flokkur af hjálpendum úr öðrum heimi, sem hafa þekk-
ingu á því, hvernig eigi að fara með lækningakraftinn og
stjórna honum.
Þeir leita að auðveldustu ráðunum til sambands við þá
sjúklinga sem nefndir hafa verið. Ef þess er kostur, er
haldið uppi beinu sambandi. Ef það er óhjákvæmilegt, er
því náð með hentugum sambandslið eða samúðarmanni.
Alt verkið er gert á hinum æðri sviðum, og vér getum að
eins gizkað á, hvernig það er framkvæmt.
Sálrænir menn, sem eru á þessum fundum, verða oft