Morgunn - 01.06.1937, Side 93
MORGUNN
87
verið þarna að verki, þar sem eg var alt af með við til-
raunirnar og lagði tvímælalaust mikinn kraft til sjálfur.
En eg get ekki varist því að brosa að slíkri tilgátu. Það
mætti vera dálítið illa innrætt undirvitund, sem hefði
strítt mér með því að vilja ekki láta nafnið koma fyr en
þetta. Eg leyfi mér að halda því fram, að það er engin
skýring á þessu önnur en sú, að kona mín hafi ekki mun-
að nafnið fyr en þetta. Með þessu tel eg það fullsannað,
að um hugsanaflutning milli mín og miðílsins sé alls ekki
að ræða. Svo skeytin geta af þeirri ástæðu verið í fullu
gildi.
Áður en eg lýk máli mínu, langar mig til að segja yð-
ur frá 2 drengjum, sem eg á í eterheiminum; annar
þeirra er nú 14 ára, en fór héðan missirisgamall, hinn er
rúmlega ársgamall (fór með móður sinni). Kona mín hafði
á hverjum fundi minst á þá við mig. 28. marz s.l. ætlaði
eg að hafa fund, en borðið, sem venjulega fer strax af
stað, stóð nú blýfast. Undraðist eg það stórlega, því slíkt
hafði ekki komið fyrir áður. Eg var rétt að því kominn að
hætta við tilraunina í það skipti, þegar borðið fór að hreyf-
ast, fyrst afar hægt og hikandi. Eg ætla að lesa yður skeyt-
ið, sem kom í það skipti. Það er á þessa leið: „Komdu
sæll, elsku pabbi minn. Mamma biður hjartanlega að heilsa
þér, hún gat ekki verið viðstödd í kvöld, því að hún þurfti
öðru að sinna. En hún bað okkur bræðurna að vera hjá
þér á meðan og passa þig. Og við skulum gera það eins vel
og við getum. G. S. (faðir miðilsins) er hér líka og hjálp-
ar okkur til að tala við þig. Mamma biður hjartanlega að
heilsa öllum og biður þig að kyssa litlu systkinin okkar
frá sér. Það eru líka margir hér í kvöld, sem bíða eftir því
að þú biðjir fyrir þeim. Mamma segist koma aftur í nótt;
hún biður okkur að kyssa þig frá sér marga kossa. Við er-
um þínir elskandi synir á sólarlandinu, Mömmublóm og
Kristján (þau nefna þann yngri Mömmublóm). Eg varð
bæði undrandi og glaður yfir þessu skeyti, sem eg átti alls
ekki von á, en síðan kemur það mjög oft fyrir að eldri